Skólaþróunarverkefnin MB fær verðskuldaða athygli í grein sem birtist í Skólaþráðum fyrr í þessum mánuði.
Þar er sagt frá nýjum áherslum skólans á innleiðingu lífsnáms, stafrænnar hönnunar og miðlunar ásamt kennslu STEAM greina (Science, Technology, Engineering, Art og Math) á öllum brautum skólans til stúdentsprófs. En í STEAM er lögð áhersla á að samþætta vísindi, tækni, verkfræði listir og stærðfræði í viðfangsefnum nemenda.
Hér er um mikla nýsköpun í skólastarfi að ræða og settur hefur verið saman samstarfsvettvangur með háskólastiginu varðandi þróun og rannsóknir á STEAM námi og kennslu.