Glæsileg söngkeppni NMB

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Söngkeppni nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar fór fram í gærkvöldi, 29. janúar. Fimm söngatriði voru á dagskrá. Það var þriggja manna dómnefnd sem fékk það erfiða verkefni að velja sigurlag kvöldsins. Sigurvegarar kvöldsins voru þeir Ernir Daði, Kristján Karl og Þorsteinn Logi (IceGuys, next generation) en þeir fluttu lagið Krumla. Í öðru sæti var Elín Ásta Sigurðardóttir hún flutti lagið Líttu sérhvert sólarlag. Aðrir flytjendur voru Anna Katrín Haraldsdóttir, Birta Jónsdóttir og Guðný Óladóttir. Kynnar kvöldsins voru þær Hera Björg Steinunnardóttir og Þóra Kolbrún Ólafsdóttir. Keppnin var vel sótt af gestum og enginn svikinn af þessari stund.