Kveðja

Bragi Þór SvavarssonFréttir

Lára Lárusdóttir stúdent frá Menntskóla Borgarfjarðar og fyrrum kennari lést  þann 9. janúar s.l. Útför Láru fer fram í dag, 24. janúar, klukkan 14:00 frá Reykholtskirkju.

Það er með virðingu og þakklæti sem starfsfólk og nemendur minnast Láru.  Vera hennar í MB einkenndist af vandvirkni, samviskusemi og sérstakri umhyggju fyrir sínu samstarfsfólki og nemendum. Sem kennari var Lára nemendum góður vinur og var einlæg í þeirri viðleitni að efla alla þá sem hún kynntist.   Lára var ekki að trana sér fram að óþörfu,  en  alltaf var stutt í hlátur og  einlæga gleði.

Við sendum nánustu fjölskyldu og vinum Láru okkar innilegustu samúðarkveðjur, megi minning um góða konu  lifa í hjörtum okkar allra.

 

Fyrir hönd starfsfólks og nemenda Menntaskóla Borgarfjarðar

Bragi Þór Svavarsson, skólameistari