Líkt og undanfarin skólalár fer fram svokölluð lífsnámsvika í MB þar sem allir staðnemar skólans vinna að ákveðnu þema og er þema vorannar 2026 ,,MannJafn” með áherslu á mannréttindi og jafnrétti. Í áfanganum er lögð áhersla á að gera nemendur meðvitaða um mannréttindi og jafnrétti í nútímasamfélagi. Fjallað verður um ólík samfélög og menningu í þessu samhengi. Greint hvernig þættir eins og búseta, fötlun, kyn og kynhneigð geti skapað mismun eða forréttindi í lífi fólks. Nemendur vinna saman í hópum, þvert á árganga, að ákveðnum verkefnum tengdum þemanu alla vikuna sem endar á opnu húsi í skólanum þar sem afrakstur vinnunnar er sýndur og koma gestir og gangandi í heimsókn. Lífsnámsvikan markar ákveðið uppbrot á hefðbundinni kennslu þar sem nemendur fá smá ,,pásu” á verkefnavinnu og eru þeir almennt mjög ánægðir með þessa tilbreytingu á skólastarfinu.Í þessari viku hafa nemendur fengið tvö fræðsluerindi. Fyrra erindið hélt Árdís Kristín, kennari við menntavísindasvið HÍ, þar fengu nemendur fræðslu um flóttafólk með áherslu á hinsegin fólk á flótta. Síðara erindið hélt Eyrún Eyþórsdóttir kennari í lögreglunámi HA, fjallaði hennar erindi um hatursorðræðu og áhrif hennar og hvernig má bregðast við henni.
