Hluti af náminu í Menntaskóla Borgarfjarðar felst í því að undir námslok vinna nemendur svokölluð lokaverkefni. Lokaverkefni er einstaklingsverkefni þar sem ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. Lokaverkefnin veita nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á afmörkuðu sviði og gegna mikilvægu hlutverki við að þjálfa þá í að beita viðurkenndum aðferðum við meðferð heimilda, rannsókn eða lausn viðfangsefna og undirbúa þá enn frekar undir háskólanám.
Úskriftarnemar við MB vinna nú að lokaverkefnum sínum við skólann. Viðfangsefni nemenda eru fjölbreytt, m.a. má nefna þjálfunaráætlun í íþróttum, ósýnilegar taugaraskanir, tónlistarsköpun í stafrænum heimi, þátttaka ungs fólks í félagslífi, Ísland í seinni heimsstyrjöld, mikilvægi björgunarsveita, þróun kvennabaráttu á 20. öld, skarð í vör, Surfagettur og áhrif þeirra á kvennabaráttu, líðan barna í íþróttum, Liverpool 2005 og 2019, sjúkdómar í sauðfé, lýðræði í Aþenuborg, The Legend of Zelda, hvernig hugsar gervigreind?, sértrúarsöfnuðir, kakótréið/útrýmingarógn, styrktarþjálfun í körfubolta, kvenfyrirlitning, hlýnun jarðar og áhrif á Ísland o.fl. Nemendur kynntu verkefni sín og svöruðu fyrirspurnum á málstofu sem haldin var í dag mánudaginn 23. febrúar. Kynningarnar voru mjög góðar og augljóst að nemendur hafa lagt metnað í vinnuna.
