Kosningar í stjórn Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir skólaárið 2024 – 2025 fóru fram fyrir skemmstu. Nýju stjórnina skipa þau Ernir Daði Arnberg Sigurðsson formaður, Jónas Bjarki Reynisson gjaldkeri, Eiríkur Frímann Jónsson skemmtanastjóri og Marta Lukka Magnúsdóttir ritari. Í haust verður svo kosið um einn meðstjórnanda úr hópi nýnema. Við óskum nýrri stjórn innilega til hamingju með kjörið og hlökkum til samstarfsins.
