Kosningar í stjórn Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir skólaárið 2025 – 2026 fóru fram á vordögum. Nýju stjórnina skipa þau Ernir Daði Sigurðsson formaður, Guðmundur Bragi Borgarsson gjaldkeri, Guðný Óladóttir skemmtanastjóri og Marta Lukka Magnúsdóttir ritari. Nú í skólabyrjun var svo kosið um einn meðstjórnanda úr hópi nýnema – Þóru Kolbrúnu Ólafsdóttur. Við óskum nýrri stjórn innilega til hamingju með kjörið og hlökkum til samstarfsins.
