Þann 17. ágúst mættu nýnemar fullir eftirvæntingar í morgunverð með starfsfólki Menntaskóla Borgarfjarðar. Að loknu ávarpi skólameistara hittu nemendur umsjónarkennara sína sem kynntu skólastarfið fyrir þeim. Menntaskóli Borgarfjarðar býður nemendur velkomna til starfa og óskar þeim velfarnaðar í námi og daglegu lífi.
![](https://menntaborg.is/wp-content/uploads/2016/12/mynd.jpg)