Útivistarferð á haustönn 2025

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Á haustönn er kenndur áfanginn Útivist og þar er viðfangsefnið gönguferðir og undirbúningur þeirra.  Þriðjudaginn 2. september sl. fóru 16 nemendur ásamt kennurum (Bjarna og Sössa) í útivistarferð á vegum MB. Ferðin í þetta sinn var tveggja daga gönguferð. Fyrri daginn var gengið upp með Gljúfurá um 10 km. leið að Langavatni. Gist var í leitarmannaskálanum Torfhvalastöðum við Langavatn. Seinni daginn gengið frá Langavatni að Hreðavatni um Grímsdal um 13 km. leið. Ferðin var bæði góð og ánægjuleg að mati nemenda og kennara og ekki spillti gott veður og frábær náttúra.