Fjarnám

Fjarnám í MB er góður kostur fyrir þá sem ekki geta stundað nám á hefðbundin hátt.  Í fjarnámi hafa nemendur aðgang að kennara sínum á ákveðnum tímum í gegnum tölvusamskipti og öllu efni er miðlað á vefumsjónarkerfi. Verkefni eru þannig sett inn á kennslukerfi (Moodle) skólans sem nemendur fá aðgang að og þangað sækja nemendur verkefnin og skila einnig. Þá er í kerfinu að finna rafrænan vettvang fyrir umræður og innlegg þar sem nemendur geta skipst á skoðunum undir leiðsögn kennara. Í Menntaskóla Borgarfjarðar er mikil áhersla á verkefnamiðað nám þar sem nemendur þurfa að vera virkir og kennarar vinna sem leiðbeinendur eða verkstjórar. Fjarnemendur mæta aldrei í skólann en eru þó velkomnir í tíma ef það hentar. Samskipti nemenda og kennara fara að mestu leyti fram í gegnum tölvupóst en nemendur geta þó hringt til að fara yfir stöðuna með kennurum.

Námsefni og kröfur í fjarnámi MB eru þær sömu og í dagskóla og því nota fjarnemendur sömu kennslubækur og gögn og aðrir nemendur skólans.

Fjarnemar eiga rétt á að: 

  • kennarar skólans svari tölvupósti innan sólarhrings á skrifstofutíma
  • kennsluáætlun áfangans sé aðgengileg á Moodle ásamt fyrirmælum frá viku til viku

Námsmat:  Hver kennari velur hvers konar námsmat veitir bestar upplýsingar um nám nemenda. Í öllum áföngum er leiðsagnarmat og ekki sérstakur prófatími í lok annar. Þetta þýðir þó ekki að kennarar leggi ekki fyrir próf þegar það hentar.

Próf og prófareglur: Próf fyrir fjarnema fara fram á Teams eða á Moodle, ekki fleiri en 2-3 próf í hverjum áfanga. Upplýsingar um námsmat koma fram í kennsluáætlun hvers áfanga. Þar kemur m.a. fram hversu mörg próf nemendur taka í hverjum áfanga, nánar um fyrirkomulag þeirra og í hvaða viku þau eru. Nemendur verða að gera ráð fyrir að geta tekið prófin á tilsettum tíma.

Upphaf kennslu:
Nemendur fá sendar upplýsingar um lykilorð, aðgang að Innu, tölvupósti og Moodle frá skrifstofu skólans.

Innskráning á Moodle: Hvernig á að skrá sig inn á Moodle H23

Fjarnámsáfangar í boði á haustönnum

EÐLI2AF05 EFNA2AE05 ENSK2LS05
ENSK3BL05 FÉLA2AK05 FÉLA3ST05 ÍSLE2RB05
ÍSLE3BF05  JARÐ2AJ05 LÍFF1LO05 LÍFF2FR05 
HAGF2ÞF05 SAGA2MS05 SAGA3ÍM05 SÁLF3ÞS05
SIÐF2IN05 SPÆN1MS05 SPÆN1MT05 STÆR2AA05
STÆR3CC05 STÆR3EE05 LÍOL2MB05
NÆRI2NÆ05  ÍÞRÓ1LN01  ÍÞRÓ1SK01

Fjarnámsáfangar í boði á vorönnum

DANS2AA05 EÐLI3BR05 EFNA2FR05 ENSK2LO05
ENSK3BS05 FÉLA2SK05 HBFR2HE05 HEIM2IH05
ÍSLE2BG05 ÍSLE3TS05 ÍÞRF3ÞF05 ÍÞRÓ1LS01
ÍÞRÓ1MÞ01 ÍÞRÓ1SI01 LÍFF2FL05 KYNJ3IN05
UPPE2UM05 SAGA3FS05 SÁLF2IS05 SPÆN1TM05
STÆR2BB05 STÆR3DD05 STÆR2TL05  BÓKF1IN05
SÁLF1AÞ04

Fjarnám – gjaldskrá

  • Innritunargjald – 10.000 kr. (allir fjarnámsnemendur greiða þetta gjald)
  • Einn áfangi – 15.000 kr. (bætist við innritunargjaldið)
  • Tveir áfangar  – 25.000 kr. (bætist við innirtunargjaldið)
  • Þrír áfangar  – 35.000 kr. (bætist við innirtunargjaldið)
  • Fjórir áfangar og fleiri 45.000 kr. (bætist við innritunargjaldið)