Stúdentsbraut að loknu starfsnámi
Brautin er ætluð nemendum í starfsnámi með námslok á 3. hæfniþrepi. Markmið með námsleiðinni er að uppfylla þær lágmarkskröfur sem aðalnámskrá framhaldsskóla setur til stúdentsprófs. Sérhæfing nemandans er fólgin í starfsnámi hans. Mikilvægt er að nemendur skipuleggi nám sitt til að mæta aðgangsviðmiðum þeirrar námsleiðar sem þeir stefna á í háskóla.
Brautin samanstendur af þeim áföngum sem nemendur af starfsnámsbrautum þurfa að lágmarki að taka til að ljúka stúdentsprófi af starfsnámsbraut. Heildarfjöldi eininga ræðst af einingafjölda starfsnámsbrautar og þeim einingum sem koma fram hér, að því tilskyldu að þessir áfangar hafi ekki verið hluti af starfsnámsbraut. Við bætast einingar sem nemandi tekur til að mæta aðgangsviðmiðum þeirrar námsleiðar sem hann stefnir á í háskóla. Nemendur útskrifast að lágmarki með 200 einingar. Nemandi getur tekið þessa áfanga jafnt og þétt gegnum námið eða bætt þeim við þegar starfsnámi lýkur hyggi hann á áframhaldandi nám.
Skólinn ráðleggur nemendum að velja að lágmarki 10 einingar í ensku og 5 einingar í stærðfræði í bundnu áfangavali. Þó ber að huga að þeirri námsleið sem nemendur stefna á í háskóla. Þrepaskipting náms þarf að vera eftirfarandi: Fyrsta þrep 17-33%, annað þrep 33-50% og þriðja þrep 17-33%. Fyrir útskrift þarf nemandi að skila prófskírteini af starfsnámsbraut á 3. þrepi.
Kjarni
Námsgrein | 1. þrep | 2. þrep | 3. þrep |
Danska | DANS2AA05 | ||
Enska | ENSK2LS05 | ||
Íslenska | ÍSLE2RB05, ÍSLE2BG05 | ÍSLE3BF05, | |
Stærðfræði | STÆR2AA05 |
Bundið áfangaval (velja 15 einingar – þrír áfangar)
Námsgrein | 1. þrep | 2. þrep | 3. þrep |
Enska | ENSK2LO05 | ENSK3BL05, ENSK3BS05 | |
Stærðfræði | STÆR2BB05, | STÆR3CC05 |
Bundið áfangaval (velja EINN áfanga)
Námsgrein | 1. þrep | 2. þrep | 3. þrep |
Félagsvísindi | FÉLA2AK05 | ||
Náttúrufræði | LÍFF1LO05 | ||
Saga | SAGA2MS05 |