Í aðalnámskrá framhaldsskóla 2011 eru settir fram sex grunnþættir menntunar; læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Í Menntaskóla Borgarfjarðar er lögð áhersla á að grunnþættir menntunar fléttist inn í allt skólastarfið. Að læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun séu sýnilegir þættir í kennslu og námi nemenda.
Grunnþættir menntunnar og lykilhæfni.
Jafnrétti
Unnið er með jafnrétti með því að
- skapa jafnrétti til náms, m.a. með því að bjóða upp á nemendagarða
- bjóða upp á fjölbreytt námsframboð
- fjalla um fjölmargar hliðar jafnréttis í tilteknum áföngum
- fjalla um staðalmyndir, kynímyndir, kyn og kyngervi í tilteknum áföngum
- koma fram við alla af virðingu og jafnræði
Lýðræði og mannréttindi
Unnið er með lýðræði og mannréttindi með því að
- fjalla um efnið í tilteknum áföngum í skólanum
- kennarar ástundi lýðræðisleg vinnubrögð þar sem því er við komið
- stjórnendur ástundi lýðræðisleg vinnubrögð þar sem því er við komið
- leggja áherslu á virðingu í framkomu og samskiptum allra aðila innan skólans
- leggja áherslu á hópavinnu og jákvæð samskipti í verkefnavinnu
- leggja ríka áherslu á að nemendur og kennarar tileinki sér lýðræðislega samræðu í daglegu starfi
- bera virðingu fyrir fjölbreytileika mannfólksins
Heilbrigði og velferð
Unnið er með heilbrigði með því að
- vera hluti af Heilsueflandi framhaldsskóla
- gera nemendum skylt að sækja líkamsrækt, innan veggja skólans eða utan
- vera með virka eineltisáætlun
- vera í góðu samstarfi við nemendafélagið
- vera þátttakandi í forvarnarhópi sveitarfélagsins
- efla sjálfstraust nemandans með leiðsagnar-, jafningja- og sjálfsmati
- efla sjálfstæði nemandans með ýmis konar verkefnum í staðinn fyrir fyrirfram ákveðin forskriftar verkefni
Sjálfbærni
Unnið er með sjálfbærni með því að
- fjalla sérstaklega um málefnið í tilteknum áföngum skólans
- vera þátttakandi í verkefninu skólar á grænni grein – græn fáni
- halda á lofti gagnrýnni umræðu um umhverfi, samfélag, náttúru og sameiginlega ábyrgð
- fjalla um jöfnuð innan kynslóða og á milli kynslóða
- gera nemendur meðvitaða um neyslu og nýtingu auðlinda jarðar
- virkja nemendur í þeirri hugsun um að flokkun á sorpi er nauðsynleg, en einnig hvernig er hægt að minnka neyslu
Sköpun
Unnið er með sköpun með því að
- gera kröfu um að verkefnum sé skilað á fjölbreyttan hátt
- leggja áherslu á myndræn skil ekki síður en rituð
- leggja áherslu á meðferð heimilda og reglum um höfundarrétt
- fjalla um listir og listasögu í tilteknum áföngum
- kenna frumkvöðlafræði
- fara í vettvangsferðir á vettvang leiklistar, stjórnmála og jarðfræði
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
Unnið er með læsi, tjáningu og samskipti á íslensku með því að
- leggja áherslu á íslenskt samfélag í íslenskuáföngum þar sem íslenskar bókmenntir eru lesnar
- nemendur lesi efni í ýmsum námsgreinum og öðlist þannig bæði grunnþekkingu á viðkomandi sviði og fái yfirsýn sem gerir þá að betri lesendum á öllum sviðum
- leggja áherslu á hópavinnu, að nemendur færi rök fyrir skoðunum sínum og haldi kynningar á íslensku
- nemendur kynnist blæbrigðaríkum og fjölbreyttum orðaforða í gegnum lestur bókmennta
- nemendur taki þátt í alls kyns verkefnavinnu þar sem reynir á samskipti og samskiptahæfni nemenda
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum
Unnið er með læsi, tjáningu og samskipti á erlendum tungumálum með því að
- kenna erlend tungumál á fjölbreyttan máta
- stuðla að því að tjáning og samskipti í tilteknum tímum fari fram á erlendu tungumáli
- nemendur afli sér upplýsinga á erlendum tungumálum í tilteknum áföngum
- nemendur kynnist menningu í þeim löndum sem tungumálið er notað
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar
Unnið er með læsi, tjáningu og samskipti um tölur og upplýsingar með því að
- fjalla um efnið í ýmsum áföngum stærðfræði og félagsvísindum
- þjálfa markvisst talnalestur og túlkun á tölulegum upplýsingum
- afla gagna og kynna niðurstöður á skapandi hátt
Námshæfni
Unnið er með námshæfni með því að
- þjálfa nemendur í að setja sér raunhæf markmið í námi og vinna að þeim
- þjálfa nemendur í námstækni ólíkra námsgreina
- taka fyrir námshæfni og námstækni á fyrstu önn nemenda í skólanum í lífsleikniáfanga
- þjálfa nemendur sérstaklega í námstækni og vinnubrögðum félagsvísinda