Jólapeysudagur í MB
Hinn árlegi jólapeysudagur nemenda og starfsfólks MB var í dag. Nemendur og starfsfólk mættu til vinnu í jólapeysum í tilefni dagsins (sjá má fleiri myndir á facebook síðu MB).
Dagur íslenskrar tungu
Í MB í dag á degi íslenskrar tungu fór fram ljóðasamkeppni á meðal nemenda. Keppnin fór þannig fram að allir hópar fengu eina blaðsíðu úr sömu bók og áttu að vinna með þau orð sem þar komu fyrir. Mikil ánægja var með þátttöku nemenda sem unnu að ljóðagerðinni bæði sem einstaklings- og hópaverkefni. Sigurvegarinn var Eygló Sunna með eftirfarandi ljóð: …
Íslensku menntaverðlaunin
Íslensku menntaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum þann 2. nóvember. Þar fékk Menntaskóli Borgarfjarðar hvatningarverðlaun íslensku menntaverðlaunanna fyrir framsækna endurskoðun á námskrá. Menntaskóli Borgarfjarðar fór í gerð þessara breytinga með það að leiðarljósi að búa nemendur sem best undir líf og störf í síbreytilegu samfélagi. Stóru málin í heiminum eins og fjórðu iðnbyltinguna, umhverfismálin og heimsmarkmið SÞ um …
Innritun á vorönn 2023
Opið fyrir umsóknir dagana 1. – 30. nóvember. Sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla sem bjóða upp á innritun fyrir nám á vorönn 2023 verður dagana 1. – 30. nóvember. Skráning fer fram rafrænt á menntagatt.is Nánari upplýsingar um skráningu gefur skrifstofa skólans í síma 4337700
Námsmatsdagur og vetrarfrí
Varða 2 – námsmatsdagur. Nemendur fá endurgjöf frá kennurum í öllum áföngum. Kennsla fellur niður vegna námsmats fimmtudaginn 27. október. Vetrarfrí er dagana 28. október og 31. október. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá 1. nóvember. Njótið frísins 🙂
Lokaverkefni – málstofa
Úskriftarnemar við MB vinna nú að lokaverkefnum sínum við skólann. Viðfangsefni nemenda eru fjölbreytt, m.a. má nefna alkóhólisma, konur í tölvunarfræði, barátta íslenskra kvenna (kvennréttindi), riðuveiki í sauðfé, ADHD fullorðina og biðtími greiningar, svarti dauði á Íslandi, ættleiðingar, uppeldisaðferðir og leiðir, ADHD og leiðsagnarnám o.fl. Nemendur kynntu verkefni sín og svöruðu fyrirspurnum á málstofu sem haldin var fimmtudaginn 13. október …
KVAN í MB
Síðustu tvö ár hefur KVAN komið og verið með námskeið fyrir nýnema hér við MB. Í gær var fyrsti dagurinn af þremur á þessari önn. Farið er yfir markmiðasetningu, styrkleikaþjálfun, “lífshjólið” samvinnu og þægindarhringinn. Við erum stolt og ánægð með þessa flottu samvinnu!
Námsmatsdagur
Miðvikudagurinn 21. september er námsmatsdagur (varða nr. 1). Kennsla fellur niður þennan dag, en nemendur gætu þurft að mæta í viðtal hjá kennara eða ljúka einhverjum verkefnum. Kennarar munu senda upplýsingar um það til nemenda.
KVIKA
Nú er allt komið á fulla verð í Kvikunni. Aðstaðan og aðbúnaðurinn eru orðin ansi vegleg. Nemendur eru farnir að spreyta sig í 3D prentun, vínyl- og laserskurði ásamt því að nota hljóð- og myndverið. Hvetjum sem flesta að koma og nýta sér þessa frábæru og skemmtilegu aðstöðu.