Skrifstofa Menntaskóla Borgarfjarðar er lokuð frá og með 22. júní vegna sumarleyfa. Skrifstofan opnar aftur þriðjudaginn 4. ágúst. Þeir sem eiga brýn erindi við skólann meðan skrifstofan er lokuð geta sent póst á skólameistara á netfangið bragi@menntaborg.is Vegna útleigu á Hjálmakletti er bent á að hafa samband við umsjónarmann húsnæðis í gegnum netfangið hjalmaklettur@menntaborg.is
Nýstúdent úr MB bar blómsveig að minnisvarða Jóns Sigurðssonar
Eyrún Freyja Andradóttir, nýstúdent frá Menntaskóla Borgarfjarðar var þess heiðurs aðnjótandi að taka þátt í hátíðarhöldunum á Austurvelli í tilefni af 82 ára afmæli lýðveldisins. Með henni í athöfninni var Daniel do Carmo Njarðarson, nýstúdent frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla, Sú hefð hefur skapast að tveir nýstúdentar, einn frá hvorum skóla, eru valdir ár hvert á þjóðhátíðardaginn 17. júní til að …
Aðalfundur MB 2026
Aðalfundur Menntaskóla Borgarfjarðar Fimmtudaginn 18. júní 2026 nk. kl. 12:00. Staður: Menntaskóli Borgarfjarðar, Borgarbraut 54, Borgarnesi Fundarefni, venjuleg aðalfundarstörf Dagskrá samkvæmt grein 3.2 í samþykktum félagsins Skýrsla stjórnar Ársreikningur lagður fram til samþykktar Kosning stjórnar Kosning formanns og varaformanns stjórnar félagsins úr hópi kjörinna aðalstjórnarmanna Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags. Ákvörðun um hvernig skuli fara …
Brautskráning 2026
Föstudaginn 29. maí voru 44 nemendur brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar. Þetta er mesti fjöldi sem hefur brautskráðst að vori frá MB Ernir Daði nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema, Erni var tíðrætt um þá stemmingu og manneskjulegu menningu sem væri í MB. Ernir sagði „Hér höfum við fengið að prófa okkur áfram, fara út fyrir þægindarammann, mistakast, læra af reynslunni, …
Sálfræðiþjónusta
Menntaskóli Borgarfjarðar og Sjúkrasjóður Stéttarfélags Vesturlands hafa endurnýjað samstarf sitt um stuðning við nemendur í MB. Samningurinn felur í sér endurgreiðslu á sálfræðiþjónustu fyrir nemendur sem þurfa á því að halda og er mikilvægur liður í að efla velferð og forvarnir innan skólans. Tilvísun frá náms- og starfsráðgjafa MB veitir nemanda rétt á endurgreiðslu/styrk allt að fjórum sálfræðitímum á skólaárinu. …
Ný stjórn NMB
Kosningar í stjórn Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir skólaárið 2026 – 2027 fóru fram nýlega. Nýju stjórnina skipa þau Kristján Karl Hallgrímsson formaður, Ólöf Sesselja Kristófersdóttir ritari, Hera Björg Steinunnardóttir skemmtanastjóri og Guðmundur Heiðar Eyjólfsson gjaldkeri. Í haust verður svo kosið um einn meðstjórnanda úr hópi nýnema. Við óskum nýrri stjórn innilega til hamingju með kjörið og hlökkum til samstarfsins.
Innritun á haustönn 2026
Innritun nýnema (nemendur úr 10. bekk) er hafin. Innritunin stendur frá 24. apríl til og með 10. júní. Skráning fer fram rafrænt á innritun.is Nánari upplýsingar um skráningu gefur skrifstofa skólans í síma 433-7700
Ráðning aðstoðarskólameistara
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir hefur verið ráðin í stöðu aðstoðarskólameistara Menntaskóla Borgarfjarðar og mun hún hefja störf í haust. Halldóra Lóa er með PMD Stjórnendaþjálfun frá Háskólanum í Reykjavik, MA í náms og starfsráðgjöf og B.ED Grunnskólakennarapróf. Halldóra hefur viðamikla reynslu af starfi innan skóla og hefur meðal annars starfað í þremur háskólum landsins. Síðustu ár hefur Halldóra Lóa verið Framkvæmdastýra …
ERASMUS
Menntaskóli Borgarfjarðar sótti á haustmánuðum um Erasmus+ aðild (accreditation) og fékk samþykki til þriggja ára. Sú aðild gefur skólanum tækifæri á að sækja um aðildarverkefni fyrir hvert ár og höfum við þegar hafist handa við að móta áætlun fyrir næstu ár sem fela í sér náms- og þjálfunarverkefni fyrir nemendur og starfsfólk. Í tengslum við þessar umsóknir hafa meðlimir Erasmus-teymisins, …
Gleðilega páska – páskaleyfi
Í dag, föstudaginn 27. mars er samkv. dagatali síðasti „kennsludagur“ fyrir páska. Kennsla hefst aftur að loknu páskaleyfi þriðjudaginn 7. apríl kl. 9:00. Gleðilega páska.








