Á Haustráðstefnu Advania sem stendur yfir í dag og á morgun var Braga Þór skólameistara boðið að flytja ávarp um MB með séstaka áherslu á þróunarverkefnið „Menntun fyrir störf framtíðar“ sem nú er hafið í MB. Ráðstefnan er rafræn og aðaldagskrá var í beinni útsendingu frá Reykjavík og Stokkhólmi. Upptökur af fyrirlestrum eru aðgengilegar á vefnum.
