Menntaskóli Borgarfjarðar vill stuðla að góðu heilbrigði nemenda og starfsmanna með því að setja sér framsækna heilsustefnu í allra þágu. Skólinn leggur áherslu á velferð nemenda, líkamlega, andlega og félagslega. Í skólanum er boðið upp á heilnæmt fæði, morgunverð og hádegisverð. Skólinn er þátttakandi í átakinu Heilsueflandi framhaldsskólar. Skólinn vinnur í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Vesturlands um almenna þjónustu við nemendur og starfsfólk. Skólinn stuðlar að aukinni þátttöku starfsfólks í íþróttum og hollri hreyfingu.
Meginmarkmið heilsustefnunnar eru eftirfarandi:
Að efla vitund fólks um mikilvægi góðrar heilsu líkamlega, andlega og félagslega.
Að styrkja heilsueflingu starfsmanna og nemenda.
Að hvetja til heilbrigðra lífshátta.
Að stuðla að því að allur aðbúnaður og hollustuhættir á vinnustað verði eins og best verður á kosið.
Að efla þekkingu á leiðum til að viðhalda góðri heilsu og heilbrigði.
Að koma í veg fyrir fjarveru starfsfólks frá vinnu vegna leiða eða líkamsástands.
Heilsuefling
Skólinn sýni fordæmi hvað varðar mikilvægi hollrar næringar.
Reykingar og önnur tóbaksnotkun eru óheimil í húsnæði og á lóð skólans.
Reglulega býður skólinn upp á fyrirlestra um heilsueflingu og líkamsrækt.
Að stuðla að aukinni vatnsneyslu nemenda og starfsmanna. Vatnsbrunnar eru í skólanum bæði fyrir nemendur og starfsfólk.
Notkun áfengis og annarra vímuefna er með öllu óheimil.
Starfsfólk
Starfsmönnum verði árlega boðið upp á flensusprautu.
Skólinn greiðir leið starfsmanna til þess að þeir geti sótt tíma í líkamsrækt.
Nemendur
Að nemendur þekki mikilvægi hollrar næringar út frá manneldismarkmiðum og hafi tækifæri til að nýta sér þá þekkingu til að efla eigið heilbrigði.
Að efla vellíðan nemenda; líkamlega, andlega og félagslega.
Skólinn mun í hvívetna vinna markvisst starf í þágu forvarna og kynna fyrir nemendum skaðsemi vímuefna.
Koma í veg fyrir að einelti og andlegt ofbeldi eigi sér stað með markvissum umræðum um afleiðingar þess og aðgerðum.
Hjúkrunarfræðingur Heilsugæslunnar í Borgarnesi aðstoðar nemendur ef upp koma vandamál er tengjast líkama og sál. Hjúkrunarfræðingurinn vinnur í
nánu samstarfi við skólastjórnendur, kennara og námsráðgjafa með hagsmuni nemenda að leiðarljósi.