Glæsileg söngkeppni MB

Ritstjórn Fréttir

Söngkeppni Menntaskóla Borgarfjarðar fór fram miðvikudagskvöldið 8. febrúar. Sex söngatriði voru á dagskrá og var umgjörð keppninnar til fyrirmyndar. Undirleikur var ekki af verri endanum en húsband skólans sá um undirleik söngatriðanna. Það var sex manna dómnefnd sem fékk það erfiða verkefni að velja sigurlag kvöldsins – en keppnin í ár var mjög jöfn. Sigurvegari kvöldsins var Selma Ágústsdóttir en …

MB kemur mjög vel út í ytra mati

Ritstjórn Fréttir

Í lok síðasta árs lét mennta- og menningamálaráðuneytið gera úttekt á starfi Menntaskóla Borgarfjarðar (MB) með það að markmiði að leggja mat á starfsemi skólans út frá þeim lögum, reglum og námsskrá sem skólinn vinnur eftir. Matskýrsla úttektaraðila kom út í lok janúar. Þar segir meðal annars að starfsemi skólans sé í góðu horfi, nemendum líði vel í skólanum, þeim …

Innritun fatlaðra nemenda í framhaldsskóla haustið 2012

Ritstjórn Fréttir

Innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fer fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla. Innritað verður frá 30. janúar til 29. febrúar 2012. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir þær umsóknir sem berast seinna. Umsækjendur sækja veflykil á menntagatt.is. Þegar umsækjendur hafa fengið veflykil opnast þeim aðgangur að innrituninni. Nánari leiðbeiningar um rafræna innritun er að …

Pílagrímar undirbúa sig

Ritstjórn Fréttir

Í maí næstkomandi halda 5 nemendur og 2 kennarar til Portúgals í Comeniusarverkefninu „Migration and cultural influences“. Í þeirri ferð verður meðal annars gengin rúmlega 80 kílómetra leið, svokölluð Fatíma-leið. Gengið verður á þremur dögum þannig að nauðsynlegt er að undirbúa sig vel. Hópurinn gekk fyrstu æfingagöngu sína í síðustu viku, um 3 km. leið í snjó og þúfum frá …

Jöfnunarstyrkur

Ritstjórn Fréttir

Athygli er vakin á því að nú er búið að opna fyrir umsóknir vegna jöfnunarstyrks. Þeir nemendur sem búa utan Borgarness eru hvattir til að sækja um. Sótt er um á vefslóðinni www.lin.is, inn á ykkar svæði á INNU eða í heimabankanum. Umsóknarfrestur vorannar 2012 er til 15. febrúar næstkomandi.Best bounus online casinos 765qwerty765

MB úr leik í Gettu betur – munaði litlu

Ritstjórn Fréttir

Lið Menntaskóla Borgarfjarðar tapaði fyrir liði Borgarholtsskóla 13-22 í Gettu betur á Rás 2 í gærkveldi. Einungis þrjú stig skildu að lið MB og stigahæsta taplið keppninnar sem komst áfram í aðra umferð.  Myndin hér til hliðar var tekin í útvarpshúsinu í gærkvöldi. Frá vinstri Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson, Inga Björk Bjarnadóttir og Jóhann Snæbjörn Traustason. Mynd: Heiðar Lind Hansson. …

Moodle tekið í notkun í MB

Ritstjórn Fréttir

MB hefur tekið upp nýtt kennslukerfi frá og með þessari önn, vorönn 2012, sem heitir Moodle og kemur í staðinn fyrir Námskjá. Moodle býður upp á mikinn fjölda hagnýtra kennsluverkfæra s.s. öflugt einkunnabókhald, hugbúnað til prófagerðar og verkefnaskila, umræðuþræði, rauntímaspjall, orðalista, gagnagrunna o.m.fl. Moodle er notað í fjölmörgum íslenskum framhaldsskólum og háskólum og um allan heim af skólum, fyrirtækjum og …

MB keppir í Gettu betur 19. janúar kl. 20:00 á Rás 2

Ritstjórn Fréttir

Keppni Menntaskóla Borgarfjarðar við Borgarholtsskóla í Gettu betur fer fram fimmtudaginn 19. janúar kl. 20:00 á Rás 2. Fyrir hönd Menntaskóla Borgarfjarðar keppa Inga Björk Bjarnadóttir, Jóhann Snæbjörn Traustason og Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson. Þjálfari liðsins okkar er Heiðar Lind Hansson. Varamenn liðsins eru Þorkell Már Einarsson sem aðstoðar einnig við þjálfun og Bárður Jökull Bjarkarson.

Gettu betur keppni frestað

Ritstjórn Fréttir

Keppni Menntaskóla Borgarfjarðar við Borgarholtsskóla í Gettu betur  sem fara átti fram í kvöld á Rás 2 hefur verið frestað fram til 19. janúar vegna veðurs.cell phone spying 765qwerty765

Vorönn 2012

Ritstjórn Fréttir

Stundatöflur (og tölvur til nýnema sem eru í 12 einingum eða fleiri) verða afhentar föstudaginn 13. janúar kl. 10. Stundatöflur og einkunnir verða aðgengilegar í INNU eftir kl. 16 fimmtudaginn 12. janúar. Kennsla á vorönn hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 16. janúar.  Óskir um breytingar á stundatöflu verða afgreiddar frá mánudegi 16. janúar til fimmtudags 19. janúar.essay writing services 765qwerty765