Sumarleyfi – lokun skrifstofu

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Skrifstofa Menntaskóla Borgarfjarðar er lokuð frá og með 24. júní vegna sumarleyfa. Skrifstofan opnar aftur þriðjudaginn 6. ágúst.  Þeir sem eiga brýn erindi við skólann meðan skrifstofan er lokuð geta sent póst á skólameistara á netfangið bragi@menntaborg.is Vegna útleigu á Hjálmakletti er bent á að hafa samband við umsjónarmann húsnæðis í gegnum netfangið hjalmaklettur@menntaborg.is Hér má nálgast skóladagatal fyrir skólaárið …

Sálfræðiþjónusta fyrir nemendur MB

Bragi Þór SvavarssonFréttir

Menntaskóli Borgarfjarðar og Stéttarfélag Vesturlands  hafa endurnýjað samkomulag um sálfræðiþjónustu fyrir nemendur skólans. Við í  Menntaskóla Borgarfjarðar eru þakklát fyrir þennan velvilja sem stjórn Sjúkrasjóðs Stéttarfélags Vesturlands sýnir nemendum MB.   Það er framsýnt stéttarfélag sem lætur sig varða andlega og/eða félagslega erfiðleika ungs fólks. Framkvæmd er þannig háttað að tilvísun frá náms- og starfsráðgjafa MB veitir nemanda rétt á endurgreiðslu/styrk …

Brautskráning 2024

Bragi Þór SvavarssonFréttir

Föstudaginn 24. maí voru 34 nemendur brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar. Kolbrún Líf Lárudóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema, Kolbrún hvatti samnemendur sína til að fagna deginum og sagði meðal annars „Þessi þrjú ár sem að ég að ég hef verið í MB hafa verið krefjandi, fjölbreytt, skemmtilegt en fyrst og fremst stútfull af æðislegum minningum og upplifunum. Ég held …

10 ára stúdentar MB – heimsókn

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Í gær heimsóttu okkur, í MB, fulltrúar 10 ára stúdenta. Okkur fannst nú eins og þau hafi rétt verið að klára síðustu verkefnin, svona líður tíminn. Það var reglulega ánægjulegt  að hitta þessa frábæru fyrrverandi nemendur MB. Skólinn stefnir að því, í samvinnu við útskrifaða nemendur, að halda góðum tengslum við sína fyrrverandi nemendur og hittast reglulega á a.mk. 10 …

Náms og skemmtiferð til Dublin

Bragi Þór SvavarssonFréttir

Dagana 24.- 28. apríl lagði 18 manna hópur starfsfólks MB, auk nokkurra maka, í námsferð til Dublin á Írlandi með það meginmarkmið að heimsækja skóla og stofnanir ásamt því að eiga góða daga saman. KVAN – travel skipulagði ferðina með okkur. Flogið var út snemma á miðvikudagsmorgni og þann dag var farið í heimsókn í ráðuneyti menntamála í Dublin. Þar …

Innritun á haustönn 2024

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Innritun nýnema (nemendur úr 10. bekk) er hafin. Innritunin stendur frá 20. mars til og með 7. júní. Skráning fer fram rafrænt á menntagatt.is  Nánari upplýsingar um skráningu gefur skrifstofa skólans í síma 433-7700 Innritun eldri nema stendur frá 15. janúar til og með 31. maí 2024. Skráning fer fram rafrænt á menntagatt.is  Nánari upplýsingar um skráningu gefur skrifstofa skólans …

Ný stjórn NMB

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Kosningar í stjórn Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir skólaárið 2024 – 2025 fóru fram fyrir skemmstu. Nýju stjórnina skipa þau Ernir Daði Arnberg Sigurðsson formaður, Jónas Bjarki Reynisson gjaldkeri, Eiríkur Frímann Jónsson skemmtanastjóri og Marta Lukka Magnúsdóttir ritari. Í haust verður svo kosið um einn meðstjórnanda úr hópi nýnema. Við óskum nýrri stjórn innilega til hamingju með kjörið og hlökkum til …

Ráðstefna þann 17. apríl 2024

Bragi Þór SvavarssonFréttir

Áhersla á STEM og STEAM nám og kennslu Sjá nánar hér! Nýsköpun í skólastarfi – Menntaskóli Borgarfjarðar (menntaborg.is)

Kennslustjóri á Starfsbraut

Bragi Þór SvavarssonFréttir

Kennslustjóri starfsbrautar hefur umsjón með faglegu starfi á Starfsbraut ásamt kennslu á brautinni. Með umsjón er átt við skipulagningu, samhæfingu og verkefnastjórnun á starfsbraut. Á starfsbraut er boðið upp á nám fyrir nemendur sem hafa greiningu fagaðila og geta ekki nýtt sér að fullu almennt nám framhaldsskóla. Markmið starfs á Starfsbraut er að bjóða upp á nám við hæfi bæði …

Við óskum eftir samstarfi.

Bragi Þór SvavarssonFréttir

Nemendum við Menntaskóla Borgarfjarðar hefur fjölgað verulega síðustu ár, ekki síst staðnemum. Þetta er ánægjuleg þróun og sérlega ánægjulegt að hingað sækja nemendur sem ekki eiga heimili í Borgarbyggð og þurfa annaðhvort að treysta á almenningssamgöngur eða að finna sér húsnæði í næsta nágrenni.  Hér í Borgarnesi eru búsettir núna á vorönn milli 15 og  20 nemendur annaðhvort í  húsnæði …