Bókalisti fyrir vorönn 2013

RitstjórnFréttir

Bókalisti fyrir vorönn 2013 hefur nú verið birtur á vef skólans. Á vorönninni verður meðal annars boðið upp á kennslu í þýsku og kynjafræði en þessar námsgreinar hafa ekki verið kenndar við Menntaskóla Borgarfjarðar áður. Bókalistann má nálgast hér. essay writing service zp8497586rq

Leikhópurinn

Síðustu sýningar á Litlu hryllingsbúðinni á þriðjudag og fimmtudag

RitstjórnFréttir

Sýning Leikfélags MB á Litlu hryllingsbúðinni hefur fengið frábærar viðtökur og mikil eftirspurn er eftir miðum. Nú hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningum, þriðjudaginn 27. nóvember og fimmtudaginn 29. nóvember. Sýningarnar hefjast klukkan 20.00. Í Litlu hryllingsbúðinni segir frá munaðarleysingjanum Baldri sem lifir frekar fábrotnu lífi. Hann vinnur í lítilli blómabúð í skuggahverfi stórborgar, hjá Músnikk, sem tók Baldur …

Gestkvæmt í MB

RitstjórnFréttir

Undanfarnar vikur hefur verið gestkvæmt í MB. Síðastliðinn mánudag kom Magnús B. Jónsson, stjórnarmaður í Borgarfjarðardeild Heimssýnar, í heimsókn til að ræða ESB-aðildarviðræður Íslendinga. Í síðustu viku komu  Sema Erla Serdar og Hörður Unnsteinsson frá samtökunum Já Ísland og ræddu við nemendur um sama mál. Báðar þessar heimsóknir voru í áfanganum félagsfræði 304 sem fjallar um stjórnmálafræði. writing service Þann …

Grjóthrun á lóð Menntaskóla Borgarfjarðar

RitstjórnFréttir

Gríðarstórt bjarg og nokkrir smærri grjóthnullungar hafa hrunið úr klettavegg og ofan í port við suðvesturhlið skólahússins. Talið er að þetta hafi gerst aðfaranótt miðvikudagsins 14. nóvember. Hurð skall nærri hælum því aðeins munaði um fingurbreidd að bjargið lenti á skólahúsinu. Ef svo hefði farið má gera ráð fyrir að tjón hefði orðið umtalsvert. Nú velta menn vöngum yfir því …

Ný sýn á Egils sögu

RitstjórnFréttir

Nemendur í íslensku 304 sitja þessa dagana með sveittan skallann við lestur Egils sögu. Af því tilefni fór hópurinn ásamt Önnu Guðmundsdóttur íslenskukennara í heimsókn á Landnámssetrið til þess að skoða Egilssýninguna svokölluðu. Á sýningunni  er efni Egils sögu komið til skila á nútímalegan hátt með aðferðum leikhússins og hjálp fjölda listamanna sem myndgerðu atriði sögunnar í tré. writing service …

Miðasala hafin á Litlu hryllingsbúðina

RitstjórnFréttir

Leikfélag Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýnir Litlu hryllingsbúðina föstudaginn 16. nóvember næstkomandi. Miða má panta í síma 616-7417 (Bjarki Þór) eða 862-8582 (Berglind) en einnig er hægt að panta miða með því að senda póst á netfangið: leikfelag@menntaborg.is. Æfingar á Litlu hryllingsbúðinni hafa staðið undanfarnar vikur. Með helstu hlutverk í leikritinu fara Magnús Kristjánsson sem leikur Baldur, Ísfold Grétarsdóttir leikur Auði, Rúnar Gíslason …

Ferðamálafræði í MB

RitstjórnFréttir

Undanfarin ár hefur verið boðið upp á valáfanga í ferðamálafræði í Menntaskóla Borgarfjarðar. Meginmarkmið áfangans er að efla þekkingu og skilning nemenda á ferðaþjónustu og kynna grundvallarhugtök ferðaþjónustugeirans. Áhersla er lögð á nærumhverfið,  landafræði, sögu, þjónustu, fræðslu, handverk og afþreyingu í Borgarfirði. Sú venja hefur skapast að fá fyrirlesara úr héraði til að kynna ýmis málefni er tengjast ferðaþjónustu. Nú …

Forvarnadagurinn 2012

RitstjórnFréttir

Forvarnadagurinn er nú haldinn í áttunda sinn en til þessa hefur athygli dagsins beinst að nemendum í efstu bekkjum grunnskóla. Vímuefnaneysla hefur minnkað jafnt og þétt undanfarin ár meðal grunnskólanema en sem þekkt er eykst neysla vímugjafa, sérstaklega áfengis, nokkuð hratt eftir að nemendur komast á framhaldsskólaaldur. Því var ákveðið að bjóða framhaldsskólum að taka þátt í Forvarnadeginum 2012, með …

Innritun á vorönn 2013

RitstjórnFréttir

Innritun í framhaldsskólanna á vorönn 2013 fer fram á menntagatt.is dagana 1. – 23. nóvember. Sjá áfanga í boði á heimasíðu skólans undir flipanum >námið. Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 433-7700

Norskir meistaranemar í heimsókn

RitstjórnFréttir

Fimm norskir meistaranemar í nýsköpunarmennt heimsóttu Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir stuttu ásamt kennara sínum. Norðmennirnir, sem allir eru framhaldsskólakennarar, komu hingað til lands meðal annars í þeim tilgangi að kynna sér nýsköpun í skólastarfi. Þeir stunda nám við Nordland háskólann í Bodö en skólinn tekur ásamt háskólanum í Umeaa í Svíþjóð og  menntavísindasviði Háskóla Íslands þátt í samstarfsverkefni um frumkvöðlamennt og …