Hluti af náminu í Menntaskóla Borgarfjarðar felst í því að undir námslok vinna nemendur svokölluð lokaverkefni. Um þessar mundir eru nemendur að skila af sér lokaverkefnum sem þeir hafa lagt mikla vinnu í á undanförnum mánuðum. Lokaverkefni er einstaklingsverkefni þar sem ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. Lokaverkefnin veita nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á …
Gleðilega páska – páskaleyfi
Í dag, föstudaginn 26. mars er samkv. dagatali síðasti „kennsludagur“ fyrir páska. Kennsla hefst aftur að loknu páskaleyfi miðvikudaginn 7. apríl kl. 9:00. Fyrirkomulag kennslu eftir páska verður kynnt síðar. Gleðilega páska.
Forinnritun nemenda í 10. bekk
Forinnritun nemenda í 10. bekk stendur yfir dagana 8. mars til 13. apríl Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 2005 eða síðar) hófst í dag, mánudaginn 8. mars og lýkur 13. apríl nk. Nemendur fá sent bréf með leiðbeiningum um hvernig sækja á um frá Menntamálastofnun, en í bréfinu er líka að finna veflykil sem þeir nota til að komast …
Lokavekefni – málstofur
Úskriftarnemar við MB vinna nú að lokaverkefnum sínum við skólann. Lokaverkefni er einstaklingsverkefni þar sem ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. Viðfangsefni nemenda eru fjölbreytt má þar nefna; svefn, gæði vatns, fóðrun og umhirða hrossa, sjóslys, kvíði barna, fyrirburar, rafíþróttir, sykursýki, ADHD sjúkdómurinn, hrun í tölvuleikjaiðnaði árið 1983, spilling innan FIFA, sjálfstraust og sjálfstal í íþróttum, Daisuke …
Innritun á starfsbraut
Innritun nemenda á starfsbraut í Menntaskóla Borgarfjarðar hófst þann 1. febrúar sl. og stendur til 28. febrúar. Umsækjendur sækja um skólavist á menntagatt.is Umsækjendur og foreldrar eða forráðamenn geta fengið aðstoð við rafræna innritun óski þeir eftir. Einnig er þeim bent á að hafa samband við skrifstofu skólans ef spurningar vakna. Umsækjendum og foreldrum eða forráðamönnum er velkomið að heimsækja …
Átta nemendur MB útskrifuðust með stúdentspróf í desember
Átta nemendur, Aleksandar Milenkoski, Andri Freyr Dagsson, Aníta Ýr Strange, Íris Líf Stefánsdóttir, Julian Golabek, Óliver Kristján Fjeldsted, Stefán Fannar Haraldsson og Þórður Brynjarsson, útskrifuðust með stúdentspróf frá Menntaskóla Borgarfjarðar í dag 18. desember. Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan góða árangur og óskum þeim gæfu og góðs gengis í framtíðinni. Á myndinni má sjá helming hópsins ásamt …
Innritun á vorönn 2021
Opið fyrir umsóknir dagana 1. – 30. nóvember. Sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla sem bjóða upp á innritun fyrir nám á vorönn 2021 verður dagana 1. – 30. nóvember. Skráning fer fram rafrænt á menntagatt.is Nánari upplýsingar um skráningu gefur skrifstofa skólans í síma 4337700
Málstofa – lokaverkefni
Útskriftarnemar við MB vinna nú að lokaverkefnum sínum við skólann. Viðfangsefni nemenda eru fjölbreytt má þar nefna; Fangelsi á Íslandi, betrun eða refsing, vísindabyltingin, Albert Einstein, José Mourinho og árangur hans, þróun tónlistar, Akira Kurosawa og áhrif hans á kvikmyndir og leiðir til að læra nýtt tungumál. Nemendur kynntu verkefni sín í morgun og svöruðu fyrirspurnum á málstofu. Kynningarnar voru …
Fjarkennsla á Teams á morgun 5. október
Nú er orðið ljóst að vegna fjölgunar kórónuveirusmita og hertra fyrirmæla um sóttvarnir þurfum við að færa kennsluna á morgun (5. okt) yfir í fjarkennslu á Teams. Við höldum stundaskrá og í staðinn fyrir að mæta í skólann þá opna nemendur tölvuna sína heima og fara inn á Teams og mæta þar í kennslustund. Nánari upplýsingar verða sendar út á …
Breytingar á sóttvarnarreglum mánudag 7. september
Breytingar á sóttvarnarreglum taka gildi mánudaginn 7. september (áfram 1 meters reglan en breyting á fjöldatakmörkunum; 200 í stað 100). Þessar breytingar hafa eftirfarandi áhrif í MB: Áfram höldum við meters reglunni Sumir hópar færast í sínar stofur – skoða Innu og endurhlaða (refresh) stundatöflu Allir ganga inn um aðalinngang skólans og innangengt á milli hæða ALLIR HALDA ÁFRAM PERSÓNULEGUM SÓTTVÖRNUM – þvo hendur, …







