Árshátíð NMB 2018

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Árshátíð Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar (NMB) var haldin hátíðlega í gær. Veislustjórinn var Joey Christ (Jóhann Kristófer) og fórst honum það verkefni vel úr hendi. Veisluföngin komu frá Galito á Akranesi eins og undanfarin ár og alltaf jafnmikil ánægja með matinn frá þeim. Ekki var annað að sjá en að nemendur og starfsfólk skólans skemmtu sér konunglega yfir borðhaldi og skemmtiatriðum og …

Forinnritun í framhaldsskóla á haustönn 2018

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Forinnritun nemenda í 10. bekk mun standa yfir dagana 5. mars til 13. apríl Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 2002 eða síðar) hófst mánudaginn 5. mars og lýkur föstudaginn 13. apríl. Nemendur fá bréf frá Menntamálastofnun með veflykli að innritunarvef og leiðbeiningum sem afhent verður í grunnskólunum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá Menntamálastofnun með upplýsingum um innritunina. Nemendur í …

Gleðilega páska – páskaleyfi

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Föstudagurinn 23. mars er síðasti kennsludagur fyrir páska. Kennsla hefst aftur að loknu páskaleyfi miðvikudaginn 4. apríl kl. 8:20. Gleðilega páska 🙂

Þemadagar í MB

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Dagana 28. febrúar – 3. mars eru þemadagar í MB. Hefðbundin kennsla er lögð niður en þess í stað vinna nemendur að ýmsum verkefnum í stærri og minni hópum. Slíkt uppbrot á skólastarfi tíðkast víða í framhaldsskólum og er kærkomin tilbreyting fyrir bæði nemendur og kennara. Þema þessara daga er Saga jarðvangur og munu hóparnir vinna að ýmsum verkefnum tengt þemanu. Auk þess að …

Málstofa – lokaverkefni í MB

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Hluti af náminu í Menntaskóla Borgarfjarðar felst í því að undir námslok vinna nemendur svokölluð lokaverkefni. Lokaverkefni er einstaklingsverkefni þar sem ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. Lokaverkefnin veita nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á afmörkuðu sviði og gegna mikilvægu hlutverki við að þjálfa þá í að beita viðurkenndum aðferðum við meðferð heimilda, rannsókn eða …

Nemendur MB þjálfa

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Hluti af námi í áfanganum íþróttafræði 3ÞS06 felst í því að nemendur fá tækifæri til að taka þátt í þjálfun einstaklinga í þreksalnum í íþróttahúsinu. Nemendur útbúa æfingaáætlun fyrir einstaklinginn og framkvæma æfingarnar með honum. Verkefnið tókst vel og voru bæði „þjálfarar“ og gestir íþróttahússins ánægðir. Á myndinni er Arnar Smári Bjarnason nemandi í MB ásamt ánægðum viðskiptavini

Öskudagur í MB

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Öskudagurinn er fyrsti dagurinn í lönguföstu, sem hefst í sjöundu viku fyrir páska. Dagsetning hans getur sveiflast á milli 4. febrúar til 10. mars. Dagurinn dregur nafn sitt af því að ösku af brenndum pálmagreinum var dreift yfir höfuð kirkjugesta á þessum degi. Sá siður tíðkast enn í kaþólsku kirkjunni að ösku er smurt yfir enni kirkjugesta á öskudegi.  Nokkrir í MB …

Innritun á starfsbraut

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Innritun nemenda á starfsbraut í Menntaskóla Borgarfjarðar hefst þann 1. febrúar næstkomandi og stendur til 28. febrúar. Umsækjendur sækja sjálfir veflykil á menntagatt.is en að öðru leyti er þessi innritun með sama hætti og almenn innritun. Umsækjendur og foreldrar eða forráðamenn geta fengið aðstoð við rafræna innritun óski þeir eftir. Einnig er þeim bent á að hafa samband við skrifstofu …

Hljómsveitin Pési og breiðnefirnir sigraði í söngvakeppni MB

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Söngvakeppni Menntaskóla Borgarfjarðar fór fram fimmtudagskvöldið 1. febrúar sl. Flutt voru þrjú lög. Sigurvegari að þessu sinni varð hljómsveitin Pési og breiðnefirnir – en hana skipa þeir Kristján Guðmundsson á bassa, Pétur Snær Ómarsson á gítar, Guðjón Snær Magnússon í fjarveru Snæþórs Bjarka sá um trommuleikinn og Þórður Brynjarsson, söng. Allir þátttakendur stóðu sig mjög vel og var dómnefndinni því …

Jöfnunarstyrkur – umsóknarfrestur til 15. febrúar

Lilja Ólafsdóttir Fréttir

Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is Hægt er að skrá umsókn á Innu eða netbankanum! Umsóknarfrestur vegna vorannar 2018 er til 15. febrúar næstkomandi!