Föstudaginn 18. ágúst nk. eiga nýnemar að koma til starfa kl. 09:00 en þá hefst skólahald með sameiginlegum morgunverði nýnema og starfsfólks. Að morgunverði loknum fá nemendur (nýnemar) afhentar stundaskrár og fleiri gögn varðandi skólastarfið. Opnað verður fyrir stundaskrá eldri nema (INNA) föstudaginn 18. ágúst. Bókalista haustannar má finna á heimasíðu skólans www.menntaborg.is Skólastarf hefst mánudaginn 21. ágúst samkvæmt stundatöflu. Fundur með …
Sumarleyfi – lokun skrifstofu
Skrifstofa Menntaskóla Borgarfjarðar er lokuð frá og með 22. júní vegna sumarleyfa. Skrifstofan opnar aftur fimmtudaginn 3. ágúst. Þeir sem eiga brýn erindi við skólann meðan skrifstofan er lokuð geta sent póst á skólameistara á netfangið gudrunbjorg@menntaborg.is Vegna útleigu á Hjálmakletti er bent á að hafa samband við húsvörð í síma 867-2386
Brautskráning frá Menntaskóla Borgarfjarðar
Í dag var brautskráning Menntaskóla Borgarfjarðar þar sem 24 nemendur voru brautskráðir við hátíðlega athöfn. Nemendur útskrifuðust af Félagsfræðabraut, Félagsfræðabraut – íþróttasviði, Náttúrufræðibraut, Náttúrufræðibraut – íþróttasviði, af starfsbraut og með viðbótarpróf til stúdentsprófs. Hæst á stúdentsprófi að þessu sinni var Þóranna Hlíf Gilbertsdóttir. Þóranna fékk fjölmargar viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur þar á meðal fyrir vandaðasta lokaverkefnið. Gróa Lísa Ómarsdóttir var …
Einkunnir birtast í INNU á föstudag – brautskráning á laugardag
Einkunnir vorannar verða aðgengilegar í Innu um hádegisbil föstudaginn 26. maí. Brautskráning nemenda fer fram á sal skólans laugardaginn 27. maí. Athöfnin hefst kl. 14:00.
Dimmission í MB
Nemendur sem útskrifast í vor dimmittera í dag. Krakkarnir fóru um bæinn og vöktu kennara með söng og glensi í morgun og borðuðu svo morgunverð með kennurum og starfsfólki í skólanum. Síðan var haldið út í vorið og litið við á ýmsum stöðum í bænum. Klukkan 11:00 hefst svo skemmtidagskrá nemenda í hátíðarsal skólans og eru allir velkomnir. Útskrift verður laugardaginn …
Útskriftarnemar heimsækja Bifröst
Útskriftaremendur MB fengu boð frá Háskólanum á Bifröst um að koma í heimsókn og fylgjast með misserisverkefnavörnum nemenda á Bifröst í dag. Verkefnið sem þeir fylgdust með bar heitið “Wow air – velgengni og markaðssetning”, það var bæði áhugavert og skemmtilegt viðfangsefni sem á vel við í dag þar sem ferðaþjónusta er í miklum uppgangi. Nemendum var boðið uppá hádegismat …
Vordagur nemenda í Menntaskóla Borgarfjarðar 2017
Í dag héldu nemendur MB vordaginn sinn sem er árlegur viðburður í lok hvers skólaárs. Nemendur gerðu sér glaðan dag með því að fara í skemmtilegan stigaleik/ratleik þar sem þeir þurftu að bregða á hin ýmsu ráð til að ná stigum, svo var farið í glæsilegan sápubolta í Skallagrímsgarði þar sem nemendur öttu kappi með mismunandi árangri. Að lokum voru …
Ný stjórn nemendafélags MB
Kosningar í stjórn Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir skólaárið 2017 – 2018 fóru fram í dag. Nýju stjórnina skipa þau Dagbjört Diljá Haraldsdóttir formaður, Jarþrúður Ragna Jóhannsdóttir gjaldkeri, Sveinbjörn Sigurðsson skemmtanastjóri og Snæþór Bjarki Jónsson ritari. Í haust verður svo kosið um einn meðstjórnanda úr hópi nýnema. Nemendafélagið eða NMB hefur verið starfrækt frá stofnun skólans árið 2007. Stjórn þess er tengiliður nemenda skólans …
Samstarf MB og NFU í Svedala
Þessa viku eru 15 sænskir nemendur og fjórir kennarar frá NFU menntaskólanum í Svedala í náms- og kynnisferð á Íslandi. NFU á í samstarfi við MB og er þetta í fjórða sinn sem nemendur hans koma hingað. Svíarnir hafa farið, ásamt nemendum MB, í tvær vettvangsferðir. Í þeirri fyrri voru uppsveitir Borgarfjarðar skoðaðar. Í Reykholti fræddust nemendur um sögu staðarins og skoðuðu …
Aðalfundur Menntaskóla Borgarfjarðar
Aðalfundur menntaskóla Borgarfjarðar fer fram miðvikudaginn 3. maí klukkan 12:00 í Hjálmakletti. Dagskrá samkvæmt grein 3.2 í samþykktum félagsins 1. Skýrsla stjórnar 2. Ársreikningur lagður fram til samþykktar 3. Kosning stjórnar 4. Kosning endurskoðunarfélags til eins árs 5. Ákvörðun um hvernig skuli fara með hagnað eða tap félagsins og framlög í varasjóð 6. Ákvörðun um greiðslur til stjórnarmanna fyrir störf …