Jöfnunarstyrkur

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki á menntasjodur.is  Eingöngu er hægt að sækja um jöfnunarstyrkinn með rafrænum skilríkjum á menntasjodur.is /MITT LÁN og  island.is. Umsóknarfrestur vegna haustannar 2021 er til 15. október næstkomandi.

Nýnemar mættir til starfa

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Nýnemar mættu í hús í skólabyrjun, fengu hressingu, hittu umsjónarkennara, fengu stundaskrá og komu sér inn í tæknilega þætti eins og aðgang að kerfum og kennslukerfi. Það var frábært að sjá húsið lifna við og nemendur augljóslega spenntir fyrir þeim áskorunum sem fylgja því að hefja nám í framhaldsskóla. Fyrstu dagarnir munu fara í að kynnast þessu nýja umhverfi, læra …

Haustönn 2021 – skólabyrjun

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Skólastarf hefst á haustönn 2021 með móttöku nýnema miðvikudaginn 18. ágúst klukkan 09:00. Dagurinn hefst með morgunhressingu nýnema og starfsfólks. Að morgunverði loknum fá nýnemar afhentar stundaskrár, aðrar nauðsynlegar upplýsingar um skólastarfið og fá kennslu á helstu kerfi skólans. Við óskum eftir því að nemendur mæti með tölvurnar sínar og snjalltæki þennan dag. Eldri nemendur geta nálgast stundatöflurnar sínar á …

Sumarleyfi – lokun skrifstofu MB

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Skrifstofa Menntaskóla Borgarfjarðar er lokuð frá og með 21. júní vegna sumarleyfa. Skrifstofan opnar aftur miðvikudaginn 4. ágúst.  Þeir sem eiga brýn erindi við skólann meðan skrifstofan er lokuð geta sent póst á skólameistara á netfangið bragi@menntaborg.is Vegna útleigu á Hjálmakletti er bent á að hafa samband við húsvörð í síma 611-4293.

Innritun

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Lokainnritun 10. bekkinga fer fram frá 6. maí til 10. júní, Nemendur í 10. bekk geta sótt um eða breytt umsóknum sínum á þessu tímabili, Opið er fyrir innritun eldri nema  til 31. maí.  (fæddir 2004 og fyrr), nemendur sækja um skólavist inn á www.menntagatt.is Sjá námsbrautir og áfanga í boði á haustönn á heimasíðu skólans www.menntaborg.is Nánari upplýsingar um …

Ný stjórn NMB

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Kosningar í stjórn Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir skólaárið 2021 – 2022 fóru fram fyrir skemmstu. Nýju stjórnina skipa þau Daníel Fannar Einarsson formaður, Elinóra Ýr Kristjánsdóttir ritari, Vilhjálmur Ingi Ríkharðsson skemmtanastjóri og Þórunn Sara Arnarsdóttir ritari. Í haust verður svo kosið um einn meðstjórnanda úr hópi nýnema. Við óskum nýrri stjórn innilega til hamingju með kjörið og hlökkum til samstarfsins.

Lokaverkefni í MB

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Hluti af náminu í Menntaskóla Borgarfjarðar felst í því að undir námslok vinna nemendur svokölluð lokaverkefni. Um þessar mundir eru nemendur að skila af sér lokaverkefnum sem þeir hafa lagt mikla vinnu í á undanförnum mánuðum. Lokaverkefni er einstaklingsverkefni þar sem ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. Lokaverkefnin veita nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á …

Gleðilega páska – páskaleyfi

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Í dag, föstudaginn 26. mars er samkv. dagatali síðasti „kennsludagur“ fyrir páska. Kennsla hefst aftur að loknu páskaleyfi miðvikudaginn 7. apríl kl. 9:00. Fyrirkomulag kennslu eftir páska verður kynnt síðar. Gleðilega páska.

Forinnritun nemenda í 10. bekk

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Forinnritun nemenda í 10. bekk stendur yfir dagana 8. mars til 13. apríl Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 2005 eða síðar) hófst í dag, mánudaginn 8. mars og lýkur 13. apríl nk. Nemendur fá sent bréf með leiðbeiningum um hvernig sækja á um frá Menntamálastofnun, en í bréfinu er líka að finna veflykil sem þeir nota til að komast …

Lokavekefni – málstofur

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Úskriftarnemar við MB vinna nú að lokaverkefnum sínum við skólann. Lokaverkefni er einstaklingsverkefni þar sem ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. Viðfangsefni nemenda eru fjölbreytt má þar nefna; svefn, gæði vatns, fóðrun og umhirða hrossa, sjóslys, kvíði barna, fyrirburar, rafíþróttir, sykursýki, ADHD sjúkdómurinn, hrun í tölvuleikjaiðnaði árið 1983, spilling innan FIFA, sjálfstraust og sjálfstal í íþróttum, Daisuke …