Afreksfólk í MB

Ritstjórn Fréttir

Nemendur til hamingju. Þrír nemendur MB voru tilnefndir í kjör íþróttamanns Borgarfjarðar. Þetta voru þau Bjarki Pétursson, Birgir Þór Sverrisson og Ísfold Grétarsdóttir. Kjörið fór fram sl. laugardag og var Bjarki Pétursson, golfari kjörinn íþróttamaður Borgarfjarðar árið 2010. Þann sama dag varð Daníel Andri Jónsson þrefaldur Íslandsmeistari í kraftlyftingum WPC. Daníel Andri bar sigur úr bítum í öllum greinum þ.e. …

Ræðukeppni

Ritstjórn Fréttir

Ræðukeppni félags enskukennara (FEKI) fyrir framhaldsskólanema var haldin sl. laugardag í Háskólanum í Reykjavík. Þessi keppni er fyrir þátttakendur á aldrinum 16-20 ára og var þema keppninnar í ár ,,Lessons for the future“. Þetta er í annað sinn sem keppnin er haldin hér á landi, en sigurvegari keppninnar fer fyrir hönd Íslands til Lundúna og tekur þar þátt í alþjóðlegri …

Ferð til fjár

Ritstjórn Fréttir

Breki Karlsson mætti í Menntaskólann í morgun ásamt Benhard útibústjóra Arionbanka. Breki hefur ferðast um landið og haldið námskeið um fjármálalæsi sem ber nafnið Ferð til fjár. Hann vakti mikla athygli með sjónvarpsþáttunum sem báru sama nafn og voru sýndir á RÚV nú í janúar. Á námskeiðinu, sem byggt er á þáttunum og samnefndri bók, fer Breki betur í saumana …

Skemmtileg heimsókn

Ritstjórn Fréttir

Menntaskólinn í Borgarfirði fékk skemmtilega heimsókn í síðustu viku þegar Lara Roje frá Króatíu, Yuriko Yokoyama frá Japan og Ogwang Denis Mobjoe frá Úganda komu og kynntu menningu sína fyrir nemendum í félagsfræði. Nemendur fengu umfjöllun um stríðið í Króatíu og áhrif þess á samfélagið, rætt var um matarmenningu og uppfinningar ásamt mörgu öðru. Nemendur fræddust líka um ólíka þjóðflokka …

„Dark Side of the moon“

Ritstjórn Fréttir

Leikfélag nemendafélags skólans er að setja upp leikritið „Dark Side of the moon“ Þetta er frumsamið verk út frá einni vinsælustu plötu heims í gegnum spuna af leikstjóranum Bjarti Guðmundsyni og leikhópnum.  Á endanum verður síðan sett saman heilstætt verk með tónlist, dansi og öllu tilheyrandi. Þetta verk hefur ekki verið sett upp áður og er farið að vekja mikla …

Westside

Ritstjórn Fréttir

Westside var haldið fimmtudaginn 27. janúar. Á Westside hittast nemendur framhaldsskólanna þriggja á Vesturlandi og eiga góða stund saman. Fjörið byrjaði kl. 17. með því að keppt var í nokkrum keppnisgreinum eins og fótbolta, körfubolta, blaki, boccia og spurningakeppni í anda Gettu betur. Það voru nemendur í Menntaskóla Borgarfjarðar sem unnu keppnina þetta árið og fengu faraldbikar að launum. Um …

Söngkeppni MB og Mímis

Ritstjórn Fréttir

Söngkeppni Menntaskóla Borgarfjarðar og ungmennahússins Mímis var haldin í gærkvöldi. Þar var keppt um hver verður fulltrúi MB í Söngkeppni framhaldsskólanna. Sjö einstaklingar tóku þátt í keppninni það voru þau Díana, Ísfold, Jóhanna María, Óli Þór, Þorkell, Magnús Daníel og Vigdís Elín. Sigurvegari varð Magnús Daníel Einarsson og söng hann lagið When you belive við undirleik Birnu Kristínar.

Luku námi við MB

Ritstjórn Fréttir

Tveir nemendur luku námi við skólann nú í janúar. Það voru þær Erla Rún Rúnarsdóttir á Náttúrufræðibraut og Linda Björk Jakobsdóttir á Félagsfræðabraut. Þar sem ekki er formleg brautskráningarathöfn í janúar fengu þær stöllur afhent skíreini hjá skólameistara en munu taka þátt í athöfninni í vor með þeim nemendum sem þá brautskrást. Starfsfólk MB óskar Erlu Rún og Lindu Björk …

Skólameistaraskipti í Menntaskóla Borgarfjarðar

Ritstjórn Fréttir

Í dag tók Lilja S. Ólafsdóttir við starfi skólameistara í Menntaskóla Borgarfjarðar þegar Ársæll Guðmundsson lét formlega af störfum sem skólameistari. Lilja hefur verið aðstoðarskólameistari í frá því að skólastarf hófst í MB. Við í MB óskum Lilju til hamingju með nýja starfið um leið og við þökkum Ársæli fyrir samstarfið á liðnum árum.