Erasmus+ verkefni – 2smart 2start

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Nú í vikunni hófst formlega tveggja ára Erasmus+ verkefni sem MB tekur þátt í ásamt fulltrúum frá Finnlandi, Póllandi, Rúmeníu og Tyrklandi. Fulltrúar MB í hópnum eru Ásthildur Magnúsdóttir kennari og Elín Kristjánsdóttir námsráðgjafi. Þær eru nú staddar í Rúmeníu þar sem fram fer undirbúningsfundur verkefnisins og það skipulagt tvö ár fram í tímann. Fyrsta heimsókn með nemendum verður til …

Nemendur í íþróttafræði hjálpa til í íþróttaskólanum

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Nemendur í íþróttafræði 1ÞÞ06 við MB sáu um íþróttaskóla fyrir 2 – 6 ára börn í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi laugardaginn 26. október sl. Umsjón með tíma í íþróttaskólanum er hluti af verkefnavinnu nemenda í áfanganum. Tíminn tókst sérstaklega vel og og að sögn Sigurðar Arnar Sigurðssonar kennara fóru allir glaðir og ánægðir heim jafnt menntaskólanemar sem börnin.

Innritun á vorönn 2020

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Opið fyrir umsóknir dagana 1. – 30. nóvember. Sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla sem bjóða upp á innritun fyrir nám á vorönn 2020 verður dagana 1. – 30. nóvember. Skráning fer fram rafrænt á menntagatt.is  Nánari upplýsingar um skráningu gefur skrifstofa skólans í síma 4337700

Nýr skólameistari MB

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Bragi Þór Svavarsson hefur verið ráðinn skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar. Hann tekur við starfinu þann 1. janúar 2020.  Bragi Þór lauk prófi frá kennaradeild Háskólans á Akureyri árið 1999 og meistaraprófi í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst árið 2017. Hann hefur starfað hjá Íslandsbanka frá árinu 2007, fyrst um fjögurra ára skeið sem þjónustustjóri en frá árinu 2011 sem …

Námsmatsdagur – vetrarfrí

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Föstudagurinn 25. október er námsmatsdagur (varða nr. 2). Að öllu jöfnu fellur kennsla niður þennan dag, en nemendur geta þurft að mæta í viðtal hjá kennara eða ljúka einhverjum verkefnum. Kennarar munu senda upplýsingar um það til nemenda. Vetrarfrí verður svo dagana 28. og 29. október. Kennsla hefst að nýju samkvæmt stundatöflu miðvikudaginn 30. október. 

Bilun í símkerfi

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Bilun er í símkerfi Menntaskóla Borgarfjarðar en unnið er að viðgerð. Til þess að hafa samband við skólann bendum við á að hringja beint í ritara í síma 847 – 4085 eða aðstoðarskólameistara í síma 692 – 0746. Einnig er hægt að senda skilaboð á netfangið menntaborg@menntaborg.is

Málstofa – lokaverkefni

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Hluti af náminu í Menntaskóla Borgarfjarðar felst í því að undir námslok vinna nemendur svokölluð lokaverkefni. Lokaverkefni er einstaklingsverkefni þar sem ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. Lokaverkefnin veita nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á afmörkuðu sviði og gegna mikilvægu hlutverki við að þjálfa þá í að beita viðurkenndum aðferðum við meðferð heimilda, rannsókn eða …

Auka aðalfundur Menntaskóla Borgarfjarðar ehf.

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Boðað er til auka aðalfundar í Menntaskóla Borgarfjarðar ehf. föstudaginn 18. október 2019 klukkan 12:00 í sal skólans. Breytingar á samþykktum frá hluthafafundi 11. október 2019 má finna hér. Breytingarnar eru sýnilegar með rauðum texta í skjalinu.

Hluthafafundur Menntaskóla Borgarfjarðar ehf.

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Boðað er til hluthafafundar í Menntaskóla Borgarfjarðar ehf. föstudaginn 11. október 2019 kl. 12:00 í sal skólans. Fundarboð hefur verið sent í tölvupósti á stærstu hluthafa félagsins. Tillögur að lagabreytingum eru hér. Dagskrá1. Hluthafasamkomulag2. Stjórnarkjör samkvæmt nýju hluthafasamkomulagi3. Önnur mál löglega borin upp

Heimsókn forseta Íslands á forvarnardegi

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Nemendur og starfsfólk Menntaskóla Borgarfjarðar og unglingastigs Grunnskólans í Borgarnesi héldu uppá forvarnardaginn 2019 í dag. Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson heimsótti skólana í Hjálmaklett í tilefni dagsins og ávarpaði hópinn. Hann talaði um mikilvægi þess fyrir heilsuna að fá nægan svefn og hvaða áhrif neysla orkudrykkja í miklum mæli geti haft. Hann kom inn á aukna notkun rafretta og …