Brautskráning nemenda frá MB

RitstjórnFréttir

27 nemendur voru brautskráðir við hátíðlega athöfn frá Menntaskóla Borgarfjarðar þann 6. júní. Lilja S. Ólafsdóttir aðstoðarskólameistari flutti annál skólaársins, Páll S. Brynjarsson fráfarandi sveitarstjóri flutti hátíðarræðu og Lilja Hrönn Jakobsdóttir talaði af hálfu útskriftarnema. Tónlistarflutningur var í umsjá útskriftarnema og Jónínu Ernu Arnardóttur píanóleikara. Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari brautskráði nemendur og ávarpaði þá í lokin. Í máli hennar kom meðal …

Fréttabréf MB

RitstjórnFréttir

Fréttabréf MB er nú komið út en þar ef að finna fréttir úr skólalífinu á vorönn.  Ábyrgðarmaður fréttabréfsins er Lilja S. Ólafsdóttir aðstoðarskólameistari.

Dimmission í MB

RitstjórnFréttir

Stúdentsefni í MB dimmitteruðu á síðasta kennsludegi vorannar, föstudaginn 30. maí. Að venju bauð skólinn þeim til morgunverðar og síðan var keyrt um bæinn í vagni þar til við tók skemmtidagskrá á sal skólans. Skemmtidagskráin, sem er árviss hefð í umsjón dimmittanta er opin öllum. Salurinn var þéttsetinn og góður rómur gerður að léttu gríni um samnemendur og kennara sem …

Nemendur gera skoðanakönnun í samstarfi við SSV

RitstjórnFréttir

Nýlega kynnti Vífill Karlsson hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi niðurstöður skoðanakönnunar sem unnin var með nemendum og Bjarna Þór Traustasyni kennara við Menntaskóla Borgarfjarðar. Aðalmarkmið könnunarinnar var að kanna hvað viðskiptavinir sem búa utan Borgarbyggðar versla mikið við smásöluverslanir í Borgarnesi. Í svæðahagfræðilegu tilliti segir það að hvað miklu leyti smásöluverslun í Borgarnesi er útflutningsfyrirtæki sveitarfélagsins. Þess utan var hægt …

Heimsókn í háskólann á Bifröst

RitstjórnFréttir

Nemendum í viðskiptagreinum í  MB var nýverið boðið í heimsókn í Háskólann á Bifröst. Þar fengu þeir kynningu á námsframboði háskólans sem og félagslífi. Farið var í göngutúr um háskólasvæðið og nemendagarðar skoðaðir. Loks var boðið upp á pítsu á kaffihúsinu. Nemendur voru ánægðir með heimsóknina og sögðust hafa fengið góða mynd af námi á Bifröst og lífinu í háskólaþorpinu. …

Opið hús í Búðardal

RitstjórnFréttir

Nýverið var nemendum í 8. – 10. bekkjum grunnskólans í Búðardal boðið í heimsókn í húsakynni framhaldsdeildarinnar sem þar er rekin í samstarfi við Menntaskóla Borgarfjarðar. Krakkarnir og foreldrar fengu að skoða aðstöðuna og fylgjast með kennslustund í MB. Loks var boðið upp á hressingu. Að sögn Jennyjar Nilson umsjónarmanns framhaldsdeildarinnar tókst heimsóknin afar vel og krakkarnir sýndu skólastarfinu áhuga.

Innritun í Menntaskóla Borgarfjarðar

RitstjórnFréttir

Innritun eldri nemenda (fæddir 1997 eða fyrr) fyrir haustönn 2014  fer fram dagana 4. apríl – 31. maí. Nemendur í 10. bekk hafa frest til að sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum úr forinnritun til miðnættis þriðjudaginn 10. júní. Innritun fer fram á www.menntagatt.is  Nánari upplýsingar um innritun má fá á skrifstofu skólans í síma 433 7700. Upplýsingar …

Tökum til hendinni

RitstjórnFréttir

Í tilefni af verkefninu “Tökum til hendinni” ákvað starfsfólk Menntaskólans taka til hendinni í nágrenni skólans. Fengnir voru steinsteyptir hringir í Loftorku til að verja birkiplöntur sem aðskilja bílastæði skólans og Hyrnutorgs. Þrjár myndarlegar birkiplöntur frá Sædísi í gróðrarstöðinni Gleym mér ei voru gróðursettar og beð næst Borgarbrautinni hreinsað,  lagfært og bætt í það plöntum sem Agnes Hansen garðyrkjufræðingur og …

Sögunemar í Lundúnum

RitstjórnFréttir

Nemar í áfanganum SAG3B05, sem er lokaáfangi í sögu við MB, fóru á dögunum í ferðalag til Lundúna ásamt kennara sínum Ívari Erni Reynissyni. Meginmarkmið ferðarinnar var að kynnast nánar sögu fjarlægra slóða en British Museum hefur að geyma mikla fjársjóði í þá veru. Hópurinn dvaldi nokkuð á safninu en fékk einnig afar áhugaverða leiðsögn ljósmyndarans Lisu Ross og safnstjórans …