Kór Menntaskóla Borgarfjarðar tók þátt í aðventutónleikum Kóraborgar í Reykholtskirkju fimmtudaginn 1. desember sl. Stjórnandi kórsins er Jónína Erna Arnardóttir. Á tónleikunum komu fram ásamt kór Menntaskólans, Kór Saurbæjarprestakalls, Kór Borgarneskirkju, Samkór Mýramanna, Freyjukórinn, Gleðigjafar: Kór eldri borgara, Kór Stafholtskirkju, Karlakórinn Söngbræður og Reykholtskirkjukórinn.
Heimsókn til forseta Íslands
Þriðjudaginn 29 nóvember héldu nemendur í stjórnmálafræði í skólanum í kynnisferð til helstu valdastofnana íslenska ríkisins. Hefur slík kynnisferð ávalt verið á dagskrá áfangans frá stofnun skólans og mælst ætíð vel fyrir meðal nemenda. Að þessu sinnni var Alþingi sótt heim sem og Forsetaembættið á Bessastöðum. Tók sjálfur forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, á móti nemendum í betri stofunni …
Prjónamaraþon
Nemendur í útskriftarhóp menntaskólans standa nú í prjónamaraþoni í hátíðarsal skólans. Hafa útskriftarnemendur safnað áheitum vegna maraþonsins undanfarna daga sem munu renna í ferðasjóð hópsins. Allt prjónles verður svo gefið Rauða krossinum til dreifingu. Hófu nemendur maraþonið klukkan 9 í morgun og ætla ótrauðir að prjóna til kl. 9 í fyrramálið. how to increase penis size zp8497586rq
Skólablaðið Egla
Herdís Birna Kristjánsdóttir bar sigur úr bítum í samkeppni um nafn á skólablaði Menntaskóla Borgarfjarðar með nafninu Egla. Hún fær pitsuveislu á Hyrnunni í verðlaun. Þakkir eru færðar öllum þeim sem sendu inn tillögur um nafn á blaðið. Hægt er að fylgjast með blaðinu á facebook hér. home remedies for hives zp8497586rq
Samkeppni um nafn á skólablaði MB
Ákveðið hefur verið að efna til samkeppni um nafn á skólablaði Menntaskóla Borgarfjarðar. Nafnið ætti helst að vera tengt umhverfi og sögu Borgarfjarðar eða fornbókmenntum Íslendinga. Glæsileg verðlaun í boði fyrir vinningsnafn. Tillögur sendist á ingabb09@menntaborg.is með fyrirsögnina „Nafnakeppni skólablaðs – nafn sendanda“ Keppnin stendur til fimmtudagsins 24. nóvember
Fjör á Hrekkjavöku
Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjarðar stóð fyrir Halloweenballi (Hrekkjavökuballi) fimmtudagskvöldið 3. nóvember í Valfelli, rétt fyrir utan Borgarnes. Ballið fór vel fram og var mæting góð. Basic House Effect léku fyrir dansi og voru veitt verðlaun fyrir flottasta búninginn og þann frumlegasta. Ágústa Rut Haraldsdóttir vann í keppninni um flottasta búninginn en búningur Bárðar Jökuls Bjarkarsonar valinn sá frumlegasti. Þau má sjá …
Þjóðháttasöfnun um framhaldsskólasiði
Um þessar mundir er unnið að þjóðháttasöfnun um hefðir og siði í framhaldsskólum á vegum Þjóðminjasafn Íslands. Menntaskóli Borgarfjarðar hefur, fyrir sitt leyti, samþykkt að söfnun þessi megi fara fram innan sinna vébanda. Tilgangur söfnunarinnar er að kynnast þeirri menningu sem ríkir meðal nemenda, og er hún jafnframt hluti af meistaraverkefni í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Aðallega er spurt um …
Glæsilegur árangur nemanda MB
Alexander Gabríel Guðfinnsson nemandi við Menntaskóla Borgarfjarðar varð í 12. sæti á efra stigi í forkeppni Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna sem haldin var í haust. 328 nemendur frá 16 skólum tóku þátt í forkeppninni, 189 nemendur á neðra stigi og 139 á efra stigi. Fjórir nemendur úr Menntaskóla Borgarfjarðar tóku þátt í keppninni, ásamt Alexander Gabríel sem keppti á efra stigi þá …
Umsóknir um nám á vorönn 2012
Innritun fyrir vorönn 2012 fer fram dagana 1. nóvember til 22. nóvember. Allar umsóknir um nám eru rafrænar. Sótt er um á netinu á skólavef Mennta- og menningarmálaráðuneytis á menntagatt.is Þetta gildir aðeins fyrir þá sem EKKI stunda nám við skólann núna á haustönn. Nánari upplýsingar um innritun má fá á skrifstofu skólans í síma 433-7700.
Vetrarfrí
Vetrarfrí er í Menntaskóla Borgarfjarðar föstudaginn 28.október og mánudaginn 31.október 2011. Skólinn verður því lokaður þessa daga. Kennsla hefst aftur skv. stundaskrá þriðjudaginn 1. nóvember 2011. Njótið vel.