Það er okkur í MB mikið gleðiefni að geta tilkynnt að nú í vikunni var staðfest að Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa hlotið styrk frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu til að hefja tilraunaverkefni í almenningssamgöngum í Borgarbyggð. Verkefnið er samstarfsverkefni milli Borgarbyggðar, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Menntaskóla Borgarfjarðar og Vegagerðarinnar. Fyrir liggur að Borgarbyggð mun opna skóla- og tómstundabíla sveitarfélagsins fyrir …
Námsmatsdagur
Fimmtudagurinn 23. september er námsmatsdagur (varða nr. 1). Að öllu jöfnu fellur kennsla niður þennan dag, en nemendur gætu þurft að mæta í viðtal hjá kennara eða ljúka einhverjum verkefnum. Kennarar munu senda upplýsingar um það til nemenda.
Haustráðstefna Advania
Á Haustráðstefnu Advania sem stendur yfir í dag og á morgun var Braga Þór skólameistara boðið að flytja ávarp um MB með séstaka áherslu á þróunarverkefnið „Menntun fyrir störf framtíðar“ sem nú er hafið í MB. Ráðstefnan er rafræn og aðaldagskrá var í beinni útsendingu frá Reykjavík og Stokkhólmi. Upptökur af fyrirlestrum eru aðgengilegar á vefnum. https://haustradstefna.advania.is/event/bragi Hér má nálgast …
Jöfnunarstyrkur
Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki á menntasjodur.is Eingöngu er hægt að sækja um jöfnunarstyrkinn með rafrænum skilríkjum á menntasjodur.is /MITT LÁN og island.is. Umsóknarfrestur vegna haustannar 2021 er til 15. október næstkomandi.
Skólaþróun í MB
Menntun fyrir störf framtíðar í Menntaskóla Borgarfjarðar Menntaskóli Borgarfjarðar hefur löngum verið þekktur fyrir að vera sveigjanlegur og framsækinn skóli og gefur ekkert eftir í því markmiði sínu. Í fyrra vor skipulagði skólinn ráðstefnu sem bar heitið “Menntun fyrir störf framtíðarinnar.” Ráðstefnan endurspeglaði á margan hátt það sem fullrúar atvinnulífs á Íslandi og OECD telja vera mikilvæga hæfni fyrir framtíðina …
Nýnemar mættir til starfa
Nýnemar mættu í hús í skólabyrjun, fengu hressingu, hittu umsjónarkennara, fengu stundaskrá og komu sér inn í tæknilega þætti eins og aðgang að kerfum og kennslukerfi. Það var frábært að sjá húsið lifna við og nemendur augljóslega spenntir fyrir þeim áskorunum sem fylgja því að hefja nám í framhaldsskóla. Fyrstu dagarnir munu fara í að kynnast þessu nýja umhverfi, læra …
Haustönn 2021 – skólabyrjun
Skólastarf hefst á haustönn 2021 með móttöku nýnema miðvikudaginn 18. ágúst klukkan 09:00. Dagurinn hefst með morgunhressingu nýnema og starfsfólks. Að morgunverði loknum fá nýnemar afhentar stundaskrár, aðrar nauðsynlegar upplýsingar um skólastarfið og fá kennslu á helstu kerfi skólans. Við óskum eftir því að nemendur mæti með tölvurnar sínar og snjalltæki þennan dag. Eldri nemendur geta nálgast stundatöflurnar sínar á …
Fjarnám við MB haustið 2021
Við í MB bendum á að enn er opið er fyrir umsóknir í fjarnám hjá MB Fjarnám í MB er góður kostur fyrir þá sem ekki geta stundað nám á hefðbundinn hátt. Í fjarnámi hafa nemendur aðgang að kennara sínum í gegnum tölvusamskipti og öllu efni er miðlað á vefumsjónarkerfi. Verkefni eru þannig sett inn á kennslukerfi (Moodle) skólans sem …
Sumarleyfi – lokun skrifstofu MB
Skrifstofa Menntaskóla Borgarfjarðar er lokuð frá og með 21. júní vegna sumarleyfa. Skrifstofan opnar aftur miðvikudaginn 4. ágúst. Þeir sem eiga brýn erindi við skólann meðan skrifstofan er lokuð geta sent póst á skólameistara á netfangið bragi@menntaborg.is Vegna útleigu á Hjálmakletti er bent á að hafa samband við húsvörð í síma 611-4293.
Brautskráning 2021
Föstudaginn 28. maí voru 27 nemendur brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar. Marinó Þór Pálmason nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema, Marinó minnti okkur öll á að velja með hjartanu, frábær og falleg ræða sem snerti við öllum viðstöddum. Að venju er utanaðkomandi aðila boðið að vera með gestaávarp við brautskráningu en að þessu sinni var það hin fjölhæfa Heiðrún Helga Bjarnadóttir …