Innritun á starfsbraut

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Innritun nemenda á starfsbraut í Menntaskóla Borgarfjarðar hefst þann 1. febrúar næstkomandi og stendur til 28. febrúar. Umsækjendur sækja sjálfir veflykil á menntagatt.is en að öðru leyti er þessi innritun með sama hætti og almenn innritun. Umsækjendur og foreldrar eða forráðamenn geta fengið aðstoð við rafræna innritun óski þeir eftir. Einnig er þeim bent á að hafa samband við skrifstofu …

Félagsfræðinemar skrifa í Skessuhorn

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Undanfarnar vikur hafa nemendur í félagsfræði verið að fjalla um fjölmiðla. Liður í umfjölluninni að þessu sinni var að skrifa fréttir og greinar í Skessuhorn. Í síðustu tölublöðum hafa nemendur séð um dálkinn “Dagur í lífi” og “Spurning vikunnar” auk viðtals við skiptinemann okkar og umfjöllunar um sýningu leikfélagsins á Línu Langsokki. Verkefnavinna af þessu tagi er liður í að auka …

Heimsókn frá Stígamótum

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Stígamót hafa ákveðið að hefja reglubundna þjónustu á Vesturlandi á tveggja vikna fresti. Starfsemin verður í Borgarnesi og í boði verða gjaldfrjáls viðtöl við félagsráðgjafa fyrir fólk af öllu Vesturlandi. Í morgun var velheppnaður kynningarfundur frá Stígamótum fyrir nemendur og starfsmenn skólans. Þær Guðrún og Erla Björg fjölluðu almennt um starfsemi og þjónustu Stígamóta. Vakti erindi þeirra fólk til umhugsunar og umræðu …

Nemendur skrifa í Skessuhorn

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Miðvikudaginn 11. janúar síðastliðinn kom Magnús Magnússon, ritstjóri Skessuhorns, í heimsókn í félagsfræðitíma tilþess að kynna fyrir nemendum starfsemi Skessuhorns og starfs blaðamanna á blaðinu. Nemendurnir lærðu heilmikið af þessari heimsókn og vilja þakka Magnúsi kærlega fyrir fróðlega kynningu. Á næstunni muni nemendurnir síðan skrifa fréttir í Skessuhorn sem munu birtast á vef Skessuhorns og í blaðinu. Nemendurnir fengu sjálfir …

Jöfnunarstyrkur

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is Hægt er að skrá umsókn á Innu vefkerfi framhaldsskólanna eða í netbankanum! Umsóknarfrestur vegna vorannar 2017 er til 15. febrúar næstkomandi! Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd

Þrír nemendur útskrifuðust með stúdentspróf í desember

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Þrír nemendur, Bergþóra Lára Hilmarsdóttir, Hera Sól Hafsteinsdóttir og Stefnir Ægir Berg Stefánsson,  útskrifuðust með stúdentspróf frá Menntaskóla Borgarfjarðar þann 20. desember síðastliðinn. Þau luku öll námi af náttúrufræðibraut.  Á myndinni má sjá Bergþóru Láru ásamt Lilju S. Ólafsdóttur aðstoðarskólameistara

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Starfsfólk Menntaskóla Borgarfjarðar óskar nemendum, foreldrum og öllum velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Skrifstofa skólans verður lokuð til 4. janúar en skóli hefst samkvæmt stundatöflu föstudaginn 6. janúar. Hægt er að ná í skólameistara í síma 894-1076 ef málin þola ekki bið.

Skólastarf á vorönn 2017

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Skólastarf á vorönn hefst föstudaginn 6. janúar næstkomandi. Nýnemar fá stundaskrár sínar sendar í tölvupósti 4. janúar en kennsla hefst samkvæmt stundaskrá klukkan 8:20 þann 6. janúar. Stundaskrár eldri nemenda verða aðgengilegar í Innu miðvikudaginn 4. janúar 2017. Skólagjöld fyrir vorönn eru 12.000 krónur og samanstanda af 7.000 króna innritunargjaldi og 5.000 króna þjónustugjaldi. Eindagi þessara gjalda er 3. janúar. Nemendafélagsgjald …