Nýverið fóru nemendur í íslensku 2B06 í heimsókn í Reykholt til þess að skoða sýningu um ævi og störf Snorra Sturlusonar sem þar hefur verið sett upp. Nemendurnir hafa nýlokið við að lesa Gylfaginningu og frásagnarkafla Snorra Eddu og undirbúa sig nú fyrir að skrifa ritgerð um efnið. Það var því vel við hæfi að fara í Reykholt og njóta …
Nemendur kynna lokaverkefni sín
Nemendur í Menntaskóla Borgarfjarðar skrifa á lokaönn sinni í skólanum svokölluð lokaverkefni um viðfangsefni að eigin vali. Lokaverkefni er einstaklingsverkefni þar sem ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. Tilgangur lokaverkefna er margþættur. Þau veita nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á afmörkuðu sviði og hægt er að vinna lokaverkefni í tengslum við ýmsar stofnanir og jafnvel …
Fáðu já heimsókn
Verkefnisstjórn innanríkisráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis um vitundarvakningu um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum styrkti gerð stuttmyndarinnar Fáðu já en í myndinni er fjallað um mörkin milli ofbeldis og kynlífs. Handritshöfundar stuttmyndarinnar eru Brynhildur Björnsdóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir. essay writers Myndin var fyrir skömmu sýnd í Menntaskóla Borgarfjarðar. Í tengslum við það komu svo góðir gestir …
Háskóladagurinn 9. mars
Nú er hinn árlegi Háskóladagur skammt undan en hann verður haldinn laugardaginn 9. mars kl. 12-16. Að deginum standa allir háskólar landsins sem kynna þar ítarlega nám og starf skólanna. Boðið verður upp á líflega og skemmtilega dagskrá sem verður í Háskólanum í Reykjavík, Háskóla Íslands og í Háskólabíói og mun frír strætisvagn keyra á milli yfir daginn. post pregnancy …
Skóla- og þjónustusamningar undirritaðir
Þann 23. janúar sl. var undirritaður Þjónustusamningur um kennslu á framhaldsskólastigi milli Menntaskóla Borgarfjarðar og mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Samningurinn er um þjónustu skólans og aðbúnað vegna náms til framhaldsskólaprófs, stúdentsprófs og náms á starfsbraut og gildir til ársins 2017. Skólasamningur Menntaskóla Borgarfjarðar við mennta- og menningarmálaráðuneytið var undirritaður 22. febrúar 2013. Samningurinn gildir til 31. desember 2017. Í samningnum koma fram …
Hestamenn í MB
Innan Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar (NMB) er meðal annars starfræktur hestahópur. Í hópnum eru 8 nemendur, þau Auður Ósk Sigurþórsdóttir, Axel Örn Ásbergsson, Ágústa Rut Haraldsdóttir, Berglind Ýr Ingvarsdóttir, Hulda Jónsdóttir, Klara Sveinbjörnsdóttir, Ólafur Axel Björnsson og Sigrún Rós Helgadóttir. Þau undirbúa sig nú af kappi fyrir framhaldsskólamótið í hestaíþróttum og eru á keppnisnámskeiði undir leiðsögn Birnu Tryggvadóttur. Mótið verður haldið …
Starfsbrautin fær gjöf frá Lionsklúbbnum Öglu
Starfsbraut Menntaskóla Borgarfjarðar leitaði í nóvember síðastliðnum til Lionsklúbbsins Öglu um styrk til kaupa á Ipad spjaldtölvu og kennsluforritinu Clicker 6. Skemmst er frá því að segja að klúbburinn brást vel við erindinu og hefur nú fært starfsbrautinni þessa höfðinglegu gjöf. Ipad spjaldtölvan hentar vel við kennslu nemenda með sérþarfir og mikið er til af kennsluforritum, fyrir slíka tölvu, sem …
Vettvangsferð í Steinaríki Íslands
Í dag fóru nemendur í JAR 1A06 (jarðfræði) í árlega í vettvangsferð í Steinaríki Íslands á Akranesi ásamt Þóru Árnadóttur raungreinakennara. Nemendur skoðuðu safnið og öfluðu sér gagna í verkefni sem þeir vinna í næstu tímum og tengist helstu flokkum íslenskra steintegunda. writing services zp8497586rq
Innritun á starfsbraut hefst 1. febrúar
Innritun á starfsbrautir framhaldsskólanna fyrir fatlaða nemendur hefst þann 1. febrúar næstkomandi og stendur til 28. febrúar. Auglýsing þess efnis var birt í dagblöðum um síðustu helgi. Þar sem menntamálaráðuneytið hefur ekki upplýsingar um nöfn nemenda í grunnskólum sem sækja munu um á starfsbrautum fá grunnskólar send bréf til foreldra/forráðamanna sem þeir verða beðnir að koma til skila til hlutaðeigandi. …
Fyrrverandi hæstaréttardómari spjallar við nemendur
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttadómari, kom í heimsókn í lögfræðitíma í MB fyrir skömmu. Hann ræddi við nemendur um íslenskt réttarkerfi og starfsemi þess. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að farið væri að lögum þegar úrskurðað væri um sekt eða sakleysi einstaklinga og að huglægt mat ætti ekki við í því sambandi. Jón Steinar vitnaði í raunverulega dóma sem …