Lokaverkefni – málstofur á þriðjudag og fimmtudag

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Hluti af náminu í Menntaskóla Borgarfjarðar felst í því að undir námslok vinna nemendur svokölluð lokaverkefni. Lokaverkefni er einstaklingsverkefni þar sem ríkar kröfur eru gerðar um sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. Lokaverkefnin veita nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á afmörkuðu sviði og gegna mikilvægu hlutverki við að þjálfa þá í að beita viðurkenndum aðferðum við meðferð heimilda, rannsókn eða …

Vetrarfrí 24. febrúar

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Á morgun 24. febrúar er vetrarfrí í Menntaskóla Borgarfjarðar og skólinn því lokaður.

Leikfélag MB (Sv1) setur upp barnaleikritið Lína langsokkur

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Æfingar á barnaleikritinu Lína langsokkur standa nú yfir af fullum krafti í Hjálmakletti. Fjöldi nemenda tekur þátt í sýningunni. Með hlutverk Línu langsokk fer Íris Líf Stefánsdóttir, Phoebe Grey leikur herra Níels, Hafrún Birta Hafliðadóttir fer með hlutverk Önnu og Bjarni Freyr Gunnarsson leikur Tomma. Leikstjóri er Geir Konráð Theodórsson. Frumsýning verður nk. föstudag 17. febrúar kl. 18.

Norskir kennarar í heimsókn í MB

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Í dag tóku nemendur og starfsfólk Menntaskóla Borgarfjarðar á móti 5 kennurum frá Nannestad Videregående skole sem er framhaldsskóli staðsettur í Noregi, ekki svo langt frá Osló. Norsku kennararnir vildu kynna sér starfshætti MB, ræða við kennara, hitta nemendur og kanna möguleika á samstarfi milli skólanna tveggja. Heimsóknin gekk vel og ákveðnar hugmyndir komu upp milli íslensku og norsku kennaranna …

Menntaskóli Borgarfjarðar er þátttakandi í KOMPÁS Þekkingarsamfélaginu

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Menntaskóli Borgarfjarðar er þátttakandi í KOMPÁS Þekkingarsamfélaginu. Við hjá Menntaskóla Borgarfjarðar erum stoltir þátttakendur í KOMPÁS Þekkingarsamfélaginu. KOMPÁS er öflugur samstarfsvettvangur fjölda fyrirtækja, stofnana, háskóla, framhaldsskóla, sveitarfélaga, stéttarfélaga, fræðsluaðila og fleiri um miðlun hagnýtrar þekkingar.  Með samstarfinu er búið að byggja upp verkfærakistu atvinnulífs og skóla. Verkfærakista sem fer sífellt stækkandi og inniheldur nú yfir 2.000 skjöl, reiknivélar, eyðublöð, gátlista, …

Áskorendadagur nemenda og starfsfólks 2017

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Í dag var árlegur áskorendadagur starfsfólks og nemenda í Menntaskóla Borgarfjarðar. Starfsfólk og nemendur kepptu í mismunandi greinum með það að markmiði að hampa farandsbikarnum. Árið 2015 unnu nemendur en að þessu sinni hafði starfsfólk sigur úr býtum í æsispennandi bráðabana. Dagurinn tókst vel og starfsfólk og nemendur MB nutu dagsins saman.

Framhaldsskólaboðhlaup á Reykjavíkurleikum

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Laugardaginn 4. febrúar keppti  boðhlaupssveit karla í nafni MB í framhaldsskólaboðhlaupi á Reykjavíkurleikunum en það er eitt flottasta frjálsíþróttamót sem hefur verið haldið á landinu. Var hlaupið 4*200m. Okkar sveit stóð sig mjög vel og lenti í 4. sæti. Boðhlaupssveitina skipuðu: Arnar Smári Bjarnason, Bjarni Guðmann Jónsson, Jóhannes Valur Hafsteinsson og Steinþór Logi Arnarsson.

Nemendur MB í Háskólahermi

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Í dag og á morgun (2. – 3. feb) munu 9 nemendur úr MB taka þátt í Háskólaherminum sem fram fer í HÍ. Í Háskólaherminum gefst nemendum í framhaldsskólum tækifæri til þess að kynnast námsframboði Háskóla Íslands og vera þátttakendur í háskólasamfélaginu. Nemendur fá að heimsækja fræðasvið háskólans og leysa ýmis verkefni sem tengjast námi og störfum viðkomandi sviða.

Innritun á starfsbraut

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Innritun nemenda á starfsbraut í Menntaskóla Borgarfjarðar hefst þann 1. febrúar næstkomandi og stendur til 28. febrúar. Umsækjendur sækja sjálfir veflykil á menntagatt.is en að öðru leyti er þessi innritun með sama hætti og almenn innritun. Umsækjendur og foreldrar eða forráðamenn geta fengið aðstoð við rafræna innritun óski þeir eftir. Einnig er þeim bent á að hafa samband við skrifstofu …

Félagsfræðinemar skrifa í Skessuhorn

Lilja ÓlafsdóttirFréttir

Undanfarnar vikur hafa nemendur í félagsfræði verið að fjalla um fjölmiðla. Liður í umfjölluninni að þessu sinni var að skrifa fréttir og greinar í Skessuhorn. Í síðustu tölublöðum hafa nemendur séð um dálkinn “Dagur í lífi” og “Spurning vikunnar” auk viðtals við skiptinemann okkar og umfjöllunar um sýningu leikfélagsins á Línu Langsokki. Verkefnavinna af þessu tagi er liður í að auka …