Tómas R. Einarsson heimsótti nemendur og starfsfólk Menntaskóla Borgarfjarðar í dag. Tómas er þekktur fyrir frábæra hæfileika á kontrabassa og sem djass tónskáld auk þess sem hann hefur tekið að sér þýðingar á spænskum bókmenntum yfir á íslensku. Tómas er einn afkastamesti lagasmiður í íslenskri djassmenningu og hefur unnið með mörgum góðum tónlistarmönnum eins og Mugison, Ragnheiði Gröndal, Sigríði Thorlacius …
West Side
West Side er samstarfsverkefni Menntaskóla Borgarfjarðar, Fjölbrautaskóla Vesturlands og Fjölbrautaskóla Snæfellinga og hefur staðið um nokkurra ára skeið. Á West Side hittast nemendur skólanna, keppa í ýmsum greinum og dagskránni lýkur með balli. West Side var að þessu sinni haldið í Borgarnesi í gær. Keppt var í blaki, fótbolta, körfubolta og fílabolta í íþróttahúsinu, pítsa snædd í mennta-skólanum og loks …
Surtarbrandur
Jarþrúður Ragna er nemandi á Náttúrufræðibraut við Menntaskóla Borgarfjarðar en hún og fjölskylda hennar á Brjánslæk færðu raungreinastofu MB þennan surtarbrand að gjöf fyrr í mánuðinum. Surtarbrand má finna víða á Vestfjörðum í setlögum milli hraunlaga. „Talið er að þau hafi myndast í lægðum í landslaginu úr gróðurleifum, mó og trjábolum sem kolast hafa fyrir áhrif jarðhita og jarðlagafargs.“ (Heimild: …
Lokaverkefni – málstofa
Úskriftarnemar við MB vinna nú að lokaverkefnum sínum við skólann. Viðfangsefni nemenda eru fjölbreytt má þar nefna; Parkinson sjúkdóminn, bíla- og vélaframleiðandann Honda, sjálfbær þróun, súkkulaði, listamanninn Van Gogh, sögu teiknimynda og Alzheimer sjúkdóminn. Nemendur kynntu verkefni sín og svöruðu fyrirspurnum á málstofunni í morgun. Kynningarnar voru góðar og augljóst að nemendur hafa lagt mikinn metnað í vinnuna.
Vetrarfrí 14. október
Þann 14. október er vetrarfrí í Menntaskóla Borgarfjarðar og skólinn því lokaður.
Lýðræði – Skuggakosningar
Þessa viku standa yfir haustdagar í Menntaskóla Borgarfjarðar þar sem nemendur vinna með hugtakið lýðræði og vinna verkefni þar sem lýðræðisleg vinnubrögð eru í fyrirrúmi. Þema þessara haustdaga á vel við því að lýðræðisdagar og skuggakosningar fara nú fram í framhaldsskólum landsins. Upplýsingar um skuggakosningarnar er hægt að finna á vefsíðunni www.egkys.is Í gær komu frambjóðendur stjórnmálaflokka í heimsókn og …
Haustdagar Menntaskóla Borgarfjarðar
Mánudaginn 10. október verður enginn kennsla vegna starfsdags kennara. Dagana 11. – 13. október verða haustdagar með uppbroti á hefðbundinni kennslu. Nemendur munu taka þátt í skuggakosningum og vinna verkefni sem tengjast lýðræði, með lýðræðislegum vinnubrögðum. Við fáum ýmsa fyrirlestra og kynningar og nemendur kynna verkefni sín á sal á fimmtudaginn 13. okt klukkan 10 – 12 (tímasetning gæti breyst). …
Heimsókn MB til NFU í Svedala
Dagana 26. september til 1. október sl. heimsótti hópur nemenda MB, ásamt kennurum, NFU menntaskólann í Svedala á Skáni. Ferðin er hluti af verkefninu: „From Egill Skallagrímsson to frontline science“. Þetta var þriðja heimsókn af fjórum og í annað skiptið sem nemendur MB fóru út. Dagskráin var fjölbreytt að vanda og ýmislegt gert bæði til fróðleiks og skemmtunar. Í þessari heimsókn reyndi …
Úr félagslífi MB
Paintball ferð nemenda MB í skemmtigarðinn. Nemendur Menntaskólanns fóru á fimmtudaginn 22.09.16 í skemmtigarðinn í Reykjavík þar sem þau tóku þátt í framhaldsskólakeppni í Paintball 2016. Alls kepptu níu lið þennan dag Þrjú sjö manna karla lið og eitt kvenna liðanna var frá okkur í MB. Menntaskóli Borgarfjarðar fékk tvö lið áfram í næsta riðil keppninnar sem fram fer innan fárra vikna. …
Jöfnunarstyrkur – umsóknarfrestur til 15. október
Opnað hefur verið fyrir umsóknir vegna jöfnunarstyrks á skólaárinu 2016 – 2017. Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn í gegnum sitt svæði í heimabankanum sínum og / eða INNU. Umsóknarfrestur vegna haustannar 2016 er til 15. október næstkomandi. Þið getið kynnt ykkur reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is auk þess sem við á skrifstofu MB aðstoðum og gefum …