Þá er hafinn fyrsti áfanginn í Lífsnámi MB. Allir nemendur MB eru í áfanganum Alls- kyns sem er helgaður umfjöllun um kynlíf, kynhneigðir og kynheilbrigði með áherslu á mikilvægi gagnkvæmrar virðingar í samskiptum fólks. Nemendur vinna í hópum að ákveðnum verkefnum sem tengjast þessu umfjöllunarefni. Spennandi vika framundan. Alls – kyns MB
Útivistarferð nemenda MB
Á vorönn 2022 er kenndur áfanginn Útivist í snjó. Í áfanganum er farið í eina vetrarferð með áherslu á skíðaiðkun. Áfanginn hefst á undirbúningi fyrir ferð af þessu tagi og farið yfir atriði sem snúa að því að vinna við krefjandi vetraraðstæður. Farið yfir búnað, nesti, öryggisatriði og líkamlegt ástand sem þarf til ferða að þessu tagi. 17 nemendur ásamt …
2smart2start – Erasmus
Erasmus verkefnið 2smart2start sem hófst árið 2019 hefur legið í dvala í 2 ár vegna covid. Nú erum við að fara af stað aftur og fyrstu tveir fundirnir verða rafrænir í gegnum Teams. Á mánudag var rafrænn fundur á Teams með um 150 nemendum frá fimm löndum (Ísland, Finnland, Pólland, Rúmenía, Tyrkland). Tyrkirnir eru „gestgjafar“ þessa viku. MB verða svo …
Umsóknarfrestur um jöfnunarstyrk
Viljum minna á að umsóknarfrestur vorannar 2022 er til og með 15. febrúar n.k. ef námsmaður ætlar að fá fullan námsstyrk. Ef námsmaður sækir um eftir 15. febrúar að þá skerðist styrkurinn um 15%. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á menntasjodur@menntasjodur.is.
Námsmatsdagur – varða 1
Fimmtudagurinn 10. febrúar er námsmatsdagur (varða nr. 1). Að öllu jöfnu fellur kennsla niður þennan dag, en nemendur gætu þurft að mæta í viðtal hjá kennara eða ljúka einhverjum verkefnum. Kennarar munu senda upplýsingar um það til nemenda.
Fjarkennsla á morgun 7.2
Kæru nemendur MB. Í ljósi rauðrar viðvörunar og almennrar skynsemi ætlum við í MB að hafa kennslu í formi fjarnáms á morgun mánudag. Kennarar munu senda ykkur upplýsingar, í gegnum kennslukerfið um fjarfund. Tekin verður mæting líkt og um væri að ræða hefðbundna kennslustund. Förum varlega og nýtum tímann vel á okkar heimili við lærdóm.
Lið MB mætir MTR í fyrri umferð Gettu betur
Nýlega var dregið um keppnislið í fyrri umferð Gettu betur sem fram fer nú í janúar. Lið MB mætir Menntaskólanum á Tröllaskaga á morgun 12. janúar kl. 19:00 á ruv.is. Lið MB skipa þau Elfa Dögg , Kolbrún Líf og Jóhann Haraldur. Varamenn eru Bjartmar Áki, Þórður Logi og Jara Natalia. Þjálfari er Ólöf Björk Sigurðardóttir.
Skólaþróun í MB
Um leið og við í MB óskum öllum gleðilegs árs og friðar viljum við upplýsa um stöðu á skólaþróunarverkefninu okkar. Margt af því sem hingað til hafa verið tillögur er að verða að veruleika og stikla ég á stóru hér að neðan hvað það varðar. Þar ber fyrst að nefna að Lífsnámið sem fer af stað núna á vorönn og …
Kennsla á vorönn
Kennsla á vorönn hefst skv. stundaskrá fimmtudaginn 6. janúar kl. 9:00. Samkvæmt reglugerð um sóttvarnir í framhaldsskólum þá verður fyrirkomulag kennslu með sama sniði og í desember – sjá reglugerð https://www.stjornarradid.is/verkefni/menntamal/spurt-og-svarad-skolastarf-og-covid-19/#framhaldsskolar