Þann 21. desember var undirritaður samningur milli Borgarbyggðar og Menntaskóla Borgarfjarðar vegna aðgengis stofnana sveitarfélagsins að Kviku – skapandi rými í MB. Samningurinn gildir í fimm ár og gerir stofnunum Borgarbyggðar kleift á að bóka tíma í Kviku og nota aðstöðuna sem er til staðar með aðstoð umsjónarmanns Kviku. Eins og flestir vita …
Íslensku menntaverðlaunin
Íslensku menntaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum þann 2. nóvember. Þar fékk Menntaskóli Borgarfjarðar hvatningarverðlaun íslensku menntaverðlaunanna fyrir framsækna endurskoðun á námskrá. Menntaskóli Borgarfjarðar fór í gerð þessara breytinga með það að leiðarljósi að búa nemendur sem best undir líf og störf í síbreytilegu samfélagi. Stóru málin í heiminum eins og fjórðu iðnbyltinguna, umhverfismálin og heimsmarkmið SÞ um …
KVIKA
Nú er allt komið á fulla verð í Kvikunni. Aðstaðan og aðbúnaðurinn eru orðin ansi vegleg. Nemendur eru farnir að spreyta sig í 3D prentun, vínyl- og laserskurði ásamt því að nota hljóð- og myndverið. Hvetjum sem flesta að koma og nýta sér þessa frábæru og skemmtilegu aðstöðu.
Bygging Nemendagarða
Í dag skrifuðu formenn stjórna Nemendagarða Menntaskóla Borgarfjarðar og Brákarhlíðar undir viljayfirlýsingu í tengslum við verkefnið Borgarbraut 63 – uppbygging íbúðarhúsnæðis og nemendagarða. Skipulagsvinna er í gangi af hálfu skipulagsyfirvalda í Borgarbyggð að því svæði sem lóðin stendur á og mun þeirri vinnu ljúka á allra næstu dögum og vikum. Í yfirlýsingunni kemur fram „Við erum sammála um að fyrir lok …
Almenningssamgöngur
Líkt og skólaárið 2021 – 2022 mun Borgarbyggð opna skóla- og tómstundabíla sveitarfélagsins fyrir almenning þannig að almenningur geti keypt sér far með bílunum. Þá verða teknar upp morgunferðir alla virka daga yfir vetrartímann frá Varmalandsskóla og Kleppjárnsreykjaskóla í Borgarnes. Nemendum býðst því áfram að fara með skólabílum frá sínu heimili til Kleppjárnsreykja eða Varmalands og þaðan verður farið kl: …
Upphaf skólastarfs
Nú er starfið að komast í fullan gang í skólanum eftir sumarleyfi. Starfsfólks skrifstofu vinnur hörðum höndum að undirbúningi og er skirfstofa skólans opin. Við hvetjum nemendur og forráðamenn til að hafa samband ef þurfa þykir. Eins er enn hægt að skrá sig í fjarnám við MB og um að gera að hafa samband. Kennarar eru að vinna að undirbúningi …
Ráðning í skapandi rými
Á vordögum auglýsti MB lausa til umsóknar stöðu umsjónaraðila Kviku. Kvikan er náms- og kennslurými fyrir fjölbreytta og skapandi vinnu í öllum áföngum skólans. Nemendur og starfsfólk geta nýtt sér aðgang að tækjum og hugbúnaði sem gagnast í verklegri kennslu í öllum greinum ásamt þjálfun í stafrænni hönnun og miðlun. Kvikan mun einnig vera opin almenningi og öðrum skólastigum eins …
Þróunarsjóður námsgagna hefur styrkt MB
Þróunarsjóður námsgagna hefur styrkt MB til þróunar námsefnis fyrir STEAM nám og kennslu. Stóru málin í heiminum eins og fjórða iðnbyltingin, umhverfismálin og heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun, ásamt lýðfræðilegum áskorunum kalla á aukna nýsköpun á öllum sviðum mannlífs og samfélags. Stefnur íslenskra stjórnvalda í menntamálum og nýsköpun til ársins 2030 endurspegla mikilvægi þess að ungt fólk búi yfir hæfni …
Sálfræðiþjónusta fyrir nemendur MB
Menntaskóli Borgarfjarðar og Stéttarfélag Vesturlands hafa endurnýjað samkomulag um sálfræðiþjónustu fyrir nemendur skólans. Við í Menntaskóla Borgarfjarðar eru þakklát fyrir þennan velvilja sem stjórn Sjúkrasjóðs Stéttarfélags Vesturlands sýnir nemendum MB. Það er framsýnt stéttarfélag sem lætur sig varða andlega og/eða félagslega erfiðleika ungs fólks. Framkvæmd er þannig háttað að tilvísun frá náms- og starfsráðgjafa MB veitir nemanda rétt á endurgreiðslu/styrk …