Fyrirlestur um heilbrigði og velferð

RitstjórnFréttir

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara býður nú skólum fræðslu um grunnþætti í nýrri aðalnámskrá. Hverjum skóla er gefinn kostur á að velja fyrirlesara þar sem fjallað er um einn af eftirfarandi grunnþáttum: sjálfbærni; heilbrigði og velferð; lýðræði og mannréttindi; og jafnrétti. Halla Karen Kristjánsdóttir  og Guðrún Ragnarsdóttir, kennarar við Borgarholtsskóla, heimsóttu MB í vikunni og fjölluðu um  grunnþáttinn heilbrigði og velferð. …

Bókalisti fyrir vorönn 2013

RitstjórnFréttir

Bókalisti fyrir vorönn 2013 hefur nú verið birtur á vef skólans. Á vorönninni verður meðal annars boðið upp á kennslu í þýsku og kynjafræði en þessar námsgreinar hafa ekki verið kenndar við Menntaskóla Borgarfjarðar áður. Bókalistann má nálgast hér. essay writing service zp8497586rq

Gestkvæmt í MB

RitstjórnFréttir

Undanfarnar vikur hefur verið gestkvæmt í MB. Síðastliðinn mánudag kom Magnús B. Jónsson, stjórnarmaður í Borgarfjarðardeild Heimssýnar, í heimsókn til að ræða ESB-aðildarviðræður Íslendinga. Í síðustu viku komu  Sema Erla Serdar og Hörður Unnsteinsson frá samtökunum Já Ísland og ræddu við nemendur um sama mál. Báðar þessar heimsóknir voru í áfanganum félagsfræði 304 sem fjallar um stjórnmálafræði. writing service Þann …

Ný sýn á Egils sögu

RitstjórnFréttir

Nemendur í íslensku 304 sitja þessa dagana með sveittan skallann við lestur Egils sögu. Af því tilefni fór hópurinn ásamt Önnu Guðmundsdóttur íslenskukennara í heimsókn á Landnámssetrið til þess að skoða Egilssýninguna svokölluðu. Á sýningunni  er efni Egils sögu komið til skila á nútímalegan hátt með aðferðum leikhússins og hjálp fjölda listamanna sem myndgerðu atriði sögunnar í tré. writing service …

Grjóthrun á lóð Menntaskóla Borgarfjarðar

RitstjórnFréttir

Gríðarstórt bjarg og nokkrir smærri grjóthnullungar hafa hrunið úr klettavegg og ofan í port við suðvesturhlið skólahússins. Talið er að þetta hafi gerst aðfaranótt miðvikudagsins 14. nóvember. Hurð skall nærri hælum því aðeins munaði um fingurbreidd að bjargið lenti á skólahúsinu. Ef svo hefði farið má gera ráð fyrir að tjón hefði orðið umtalsvert. Nú velta menn vöngum yfir því …

Miðasala hafin á Litlu hryllingsbúðina

RitstjórnFréttir

Leikfélag Menntaskóla Borgarfjarðar frumsýnir Litlu hryllingsbúðina föstudaginn 16. nóvember næstkomandi. Miða má panta í síma 616-7417 (Bjarki Þór) eða 862-8582 (Berglind) en einnig er hægt að panta miða með því að senda póst á netfangið: leikfelag@menntaborg.is. Æfingar á Litlu hryllingsbúðinni hafa staðið undanfarnar vikur. Með helstu hlutverk í leikritinu fara Magnús Kristjánsson sem leikur Baldur, Ísfold Grétarsdóttir leikur Auði, Rúnar Gíslason …

Innritun á vorönn 2013

RitstjórnFréttir

Innritun í framhaldsskólanna á vorönn 2013 fer fram á menntagatt.is dagana 1. – 23. nóvember. Sjá áfanga í boði á heimasíðu skólans undir flipanum >námið. Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 433-7700

Ferðamálafræði í MB

RitstjórnFréttir

Undanfarin ár hefur verið boðið upp á valáfanga í ferðamálafræði í Menntaskóla Borgarfjarðar. Meginmarkmið áfangans er að efla þekkingu og skilning nemenda á ferðaþjónustu og kynna grundvallarhugtök ferðaþjónustugeirans. Áhersla er lögð á nærumhverfið,  landafræði, sögu, þjónustu, fræðslu, handverk og afþreyingu í Borgarfirði. Sú venja hefur skapast að fá fyrirlesara úr héraði til að kynna ýmis málefni er tengjast ferðaþjónustu. Nú …

Forvarnadagurinn 2012

RitstjórnFréttir

Forvarnadagurinn er nú haldinn í áttunda sinn en til þessa hefur athygli dagsins beinst að nemendum í efstu bekkjum grunnskóla. Vímuefnaneysla hefur minnkað jafnt og þétt undanfarin ár meðal grunnskólanema en sem þekkt er eykst neysla vímugjafa, sérstaklega áfengis, nokkuð hratt eftir að nemendur komast á framhaldsskólaaldur. Því var ákveðið að bjóða framhaldsskólum að taka þátt í Forvarnadeginum 2012, með …

Norskir meistaranemar í heimsókn

RitstjórnFréttir

Fimm norskir meistaranemar í nýsköpunarmennt heimsóttu Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir stuttu ásamt kennara sínum. Norðmennirnir, sem allir eru framhaldsskólakennarar, komu hingað til lands meðal annars í þeim tilgangi að kynna sér nýsköpun í skólastarfi. Þeir stunda nám við Nordland háskólann í Bodö en skólinn tekur ásamt háskólanum í Umeaa í Svíþjóð og  menntavísindasviði Háskóla Íslands þátt í samstarfsverkefni um frumkvöðlamennt og …