Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is Hægt er að skrá umsókn á Innu vefkerfi framhaldsskólanna eða í netbankanum! Umsóknarfrestur vegna vorannar 2017 er til 15. febrúar næstkomandi! Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd
Þrír nemendur útskrifuðust með stúdentspróf í desember
Þrír nemendur, Bergþóra Lára Hilmarsdóttir, Hera Sól Hafsteinsdóttir og Stefnir Ægir Berg Stefánsson, útskrifuðust með stúdentspróf frá Menntaskóla Borgarfjarðar þann 20. desember síðastliðinn. Þau luku öll námi af náttúrufræðibraut. Á myndinni má sjá Bergþóru Láru ásamt Lilju S. Ólafsdóttur aðstoðarskólameistara
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Starfsfólk Menntaskóla Borgarfjarðar óskar nemendum, foreldrum og öllum velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Skrifstofa skólans verður lokuð til 4. janúar en skóli hefst samkvæmt stundatöflu föstudaginn 6. janúar. Hægt er að ná í skólameistara í síma 894-1076 ef málin þola ekki bið.
Skólastarf á vorönn 2017
Skólastarf á vorönn hefst föstudaginn 6. janúar næstkomandi. Nýnemar fá stundaskrár sínar sendar í tölvupósti 4. janúar en kennsla hefst samkvæmt stundaskrá klukkan 8:20 þann 6. janúar. Stundaskrár eldri nemenda verða aðgengilegar í Innu miðvikudaginn 4. janúar 2017. Skólagjöld fyrir vorönn eru 12.000 krónur og samanstanda af 7.000 króna innritunargjaldi og 5.000 króna þjónustugjaldi. Eindagi þessara gjalda er 3. janúar. Nemendafélagsgjald …
Birting einkunna í Innu
Einkunnir haustannar verða birtar í Innu þriðjudaginn 20. desember kl. 12:00
Jólapeysudagur nemenda og starfsfólks MB
Hinn árlegi jólapeysudagur nemenda og starfsfólks MB var í dag. Nemendur og starfsfólk mættu til vinnu í jólapeysum í tilefni dagsins.