Holl hreyfing – hjólum í skólann þriðjudaginn 18. september nk.

RitstjórnFréttir

Ódýr og holl hreyfing – hjólum í skólann. Í tengslum við Heilsueflandi skóla og  Evrópska samgönguviku 16. til 22. september eru nemendur og starfsmenn skólans hvattir til að hjóla í skóla/vinnu á þriðjudaginn í næstu viku, þ.e. 18. september. Reynum svo að fanga stemninguna á mynd – gætum unnið verðlaun fyrir skemmtilegustu myndina.

Styrkþegar í HR

Nýstúdent frá MB hlýtur styrk frá Háskólanum í Reykjavík

RitstjórnFréttir

Háskólinn í Reykjavík veitti nú nýverið  styrki til afburðanemenda í skólanum. Á meðal þeirra sem hlutu nýnemastyrk í grunnnámi er Axel Máni Gíslason en hann útskrifaðist af náttúrufræðibraut Menntaskóla Borgarfjarðar í vor. Axel Máni leggur stund á  tölvunarfræði við HR. 56 nemendur hlutu styrk af forsetalista skólans, en það eru þeir nemendur sem náð hafa bestum árangri í hverri deild …

Kynning á starfi Nemendafélags Menntaskóla Borgarfjarðar

RitstjórnFréttir

Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjarðar (NMB) efnir til kynningar á starfsemi sinni miðvikudagskvöldið 12. september. Kynningin verður í Mími, í kjallara skólans, og hefst klukann 20:00. Fulltrúar allra klúbba sem starfandi eru í skólanum kynna vetrarstarfið og nemendur geta skráð sig í þá klúbba sem þeir hafa áhuga á að starfa með. Meðal klúbba sem starfræktir eru í skólanum má nefna hestaklúbb, …

Vetrarstarf skólakórsins að hefjast

RitstjórnFréttir

Kór Menntaskóla Borgafjarðar hefur nú starfsemi sína að nýju að loknu sumarleyfi. Kórinn, sem var stofnaður haustið 2011, hefur komið fram við margvísleg tækifæri og vakið mikla athygli. Kóræfingar verða á þriðjudögum og hefjast klukkan 17:00. Stjórnandi kórsins er Jónína Erna Arnardóttir söngkona og tónlistarkennari. Nýir söngfuglar eru boðnir velkomnir í kórinn.

Stöðupróf í erlendum tungumálum verða haldin í MH 13. september

RitstjórnFréttir

Stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins verða haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð fimmtudaginn 13. september næstkomandi og hefjast klukkan 16.00. Prófað verður í eftirtöldum tungumálum: Albönsku, bosnísku, eistnesku, filippísku (tagalog og cebuano), finnsku, grísku, hollensku, japönsku, kínversku, króatísku, litháísku, portúgölsku, pólsku, rússnesku, serbnesku, slóvensku, taílensku, tékknesku, tyrknesku, Twi, ungversku, úkraínsku og víetnömsku. Rafræn skráning í stöðupróf fer fram á heimasíðu …

Skemmtilegt skólablað í vændum

RitstjórnFréttir

Nú stendur yfir vinna við 2. tölublað skólablaðsins Eglu en eins og kunnugt er hóf blaðið göngu sína síðastliðið vor. Ritstjórn skólablaðsins er skipuð þeim Bjarka Þór Grönfeldt ritstjóra, Írisi R. Pedersen aðstoðarritstjóra, Eyrúnu Baldursdóttur gjaldkera, Bárði Jökli Bjarkarsyni markaðsstjóra, Arnari Þórssyni vefsíðustjóra, Tinnu Sól Þorsteinsdóttur hönnuði og Dagbjörtu Birgisdóttur ljósmyndara. Ráðgert er að 2. tölublað Eglu komi út um …

Jöfnunarstyrkur

RitstjórnFréttir

Þann 1. september var opnað fyrir umsóknir vegna jöfnunarstyrks á skólaárinu 2012-2013. Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrkinn í gegnum sitt svæði í heimabankanum sínum og/eða Innu, vefkerfi framhaldsskólanna. Umsóknarfrestur vegna haustannar 2012 er til 15. október næstkomandi. Nemendur sem sækja nám fjarri lögheimili og fjölskyldu eru hvattir til að kynna sér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á vef …

Vel tekið á móti nýnemum í Menntaskóla Borgarfjarðar

RitstjórnFréttir

Frá því skólinn hóf göngu sína hafa hefðbundnar busavígslur ekki tíðkast í Menntaskóla Borgarfjarðar. Þess í stað hefur nýnemum verið boðið í haustferð ásamt eldri nemendum og kennurum. Að þessu sinni var þó bætt um betur því þriðjudaginn 28. ágúst síðastliðinn buðu eldri nemar nýnema sérstaklega velkomna í skólann. Stjórn nemendafélagsins sá um undirbúning dagsins. Sérstakar gönguleiðir voru merktar til …

Kvikmyndagerð hefur áhrif á skólalífið

RitstjórnFréttir

Það hefur vart farið framhjá neinum að nú standa yfir tökur á myndinni The Secret Life of Walter Mitty hér á Vesturlandi. Atriði í myndinni verða tekin upp í Menntaskóla Borgarfjarðar og af þeim sökum fellur kennsla niður mánudaginn 3. september næstkomandi.  Myndin byggir á samnefndri smásögu eftir bandaríska rithöfundinn James Thurber en hún er talin meðal meistaraverka bandarískrar smásagnaritunar.  …

Ný stjórn Leikfélags MB

RitstjórnFréttir

Ný stjórn Leikfélags Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir leikárið 2012 – 2013 hefur verið valin. Stjórnina skipa Ísfold Rán Grétarsdóttir, formaður, Rúnar Gíslason, varaformaður og Bjarki Þór Grönfeldt, meðstjórnandi. Fyrsta verkefni nýju stjórnarinnar verður, í samvinnu við Nemendafélag MB,  að velja leikrit og leikstjóra. Fyrirhugað er að setja upp leikrit í skólanum nú á haustönn og því er ljóst að stjórnin verður …