Innritun á vorönn 2013

RitstjórnFréttir

Innritun í framhaldsskólanna á vorönn 2013 fer fram á menntagatt.is dagana 1. – 23. nóvember. Sjá áfanga í boði á heimasíðu skólans undir flipanum >námið. Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 433-7700

Norskir meistaranemar í heimsókn

RitstjórnFréttir

Fimm norskir meistaranemar í nýsköpunarmennt heimsóttu Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir stuttu ásamt kennara sínum. Norðmennirnir, sem allir eru framhaldsskólakennarar, komu hingað til lands meðal annars í þeim tilgangi að kynna sér nýsköpun í skólastarfi. Þeir stunda nám við Nordland háskólann í Bodö en skólinn tekur ásamt háskólanum í Umeaa í Svíþjóð og  menntavísindasviði Háskóla Íslands þátt í samstarfsverkefni um frumkvöðlamennt og …

Möguleikhúsið - Völuspá

Möguleikhúsið flytur Völuspá í Hjálmakletti

RitstjórnFréttir

Fimmtudaginn 25. október verður nemendum MB boðið á leiksýningu í Hjálmakletti. Þá mun Möguleikhúsið flytja Völuspá eftir Þórarin Eldjárn og hefst sýningin klukkan 11. Leikverkið byggir á hinni fornu Völuspá, kvæði sem er lagt  í munn völvu sem allt veit og  flytur það að beiðni Óðins. Í kvæðinu kemur fram áhugaverð sýn inn í  hugmyndaheim heiðinnar goðafræði. Upprifjun völvunnar á …

Æfingar á Litlu hryllingsbúðinni ganga vel

RitstjórnFréttir

Æfingar Leikfélags MB á Litlu hryllingsbúðinni standa nú yfir og stefnt er að því að frumsýna leikritið þann 16. nóvember næstkomandi. Með helstu hlutverk í leikritinu fara Magnús Kristjánsson sem leikur Baldur, Ísfold Grétarsdóttir leikur Auði, Rúnar Gíslason leikur Orra tannlækni og Egill Lind Hansson er í hlutverki Plöntunnar (Auðar 2). Á þriðja tug nemenda MB tekur þátt í uppfærslunni. …

Frá undirritun samningsins

Samstarfssamningur MB og LbhÍ undirritaður

RitstjórnFréttir

Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari MB og Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskóla Íslands undirrituðu í dag samstarfssamning um tilraunakennslu náttúrufræðibrautar með búfræðisviði til stúdentsprófs.  Samningurinn felur í sér að allt að fimm nemendur sem innritast á brautina hjá MB árin 2012 – 20015 eiga vísa skólavist í búfræði hjá LbhÍ eftir að hafa lokið þeim hluta námsins sem fram fer í MB. Við …

Rödd þjóðarinnar tekin upp í MB

Nemendur og starfsfólk MB leggja rödd þjóðarinnar lið

RitstjórnFréttir

Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri Fjallabræðra, er um þessar mundir að vinna að upptökum á lagi með kórnum en til nýmæla heyrir að stór hluti þjóðarinnar tekur undir í lokakafla lagsins. Að flutningi lagsins, sem nefnist Ísland, koma auk Fjallabræðra og hljómsveitar þeirra, Lúðrasveit Vestmannaeyja og Unnur Birna Björnsdóttir sem syngur einsöng. Halldór Gunnar samdi lagið en textinn er eftir Jökul …

Aðalfundur foreldrafélags MB

RitstjórnFréttir

Ágætu foreldrar / forráðamenn. Aðalfundur foreldrafélags Menntaskóla Borgarfjarðar verður haldinn mánudaginn 15. október kl. 18:00  í stofu 101 í  Menntaskólanum. Í lögum um framhaldsskóla er skylt að hafa foreldraráð. read more Við hvetjum ykkur eindregið til að mæta og koma með hugmyndir um hvernig við getum stutt við bakið á börnunum okkar. Vinnum saman Kær kveðja stjórnin zp8497586rq

West Side

RitstjórnFréttir

West Side er samstarfsverkefni Menntaskóla Borgarfjarðar, Fjölbrautaskóla Vesturlands og Fjölbrautaskóla Snæfellinga og hefur staðið um nokkurra ára skeið. Á West Side hittast nemendur skólanna, keppa í ýmsum greinum og dagskránni lýkur með balli.  West Side var að þessu sinni haldið í Ólafsvík þann 4. október síðastliðinn. Rúmlega 40 nemendur frá MB lögðu leið sína til Ólafsvíkur. Keppt var í blaki, …

Styrkþegar úr MB

RitstjórnFréttir

Að minnsta kosti þrír fyrrum nemendur Menntaskóla Borgarfjarðar hafa hlotið námsstyrki sem veittir eru framúrskarandi námsmönnum nú á haustönn. Ólöf Sunna Gautadóttir hlaut styrk úr Samfélagssjóði Landsbankans. Í frétt frá bankanum kemur fram að dómnefndin leitaðist við að velja metnaðarfulla, framúrskarandi námsmenn með framtíðarsýn sem nefndin taldi líklega til að auðga íslenskt samfélag í framtíðinni.  Ólöf Sunna stundar grunnnám í …

Áheyrnarprufur vegna Litlu hryllingsbúðarinnar

RitstjórnFréttir

Hinn sívinsæli söngleikur, Litla hryllingsbúðin eftir Menken og Ashman, er verkefni Leikfélags Menntaskóla Borgarfjarðar nú á haustönn. Tónlistin í Litlu hryllingsbúðinni er í anda sjöunda áratugar 20. aldar. Mörg þekkt lög eru í söngleiknum; nefna má Þú verður tannlæknir og Gemmér sem Íslendingum eru að góðu kunn. Litla hryllingsbúðin hefur verið sett á svið víða um heim og  hefur löngum …