Æfingar hafnar á söngleiknum Grease

RitstjórnFréttir

Leiklistarhópur MB hóf nýverið æfingar á söngleiknum Grease en fyrirhugað er að frumsýna verkið í janúar. Valið hefur verið í flest hlutverk og með hlutverk þeirra Sandy og Danny fara Ingibjörg Kristjánsdóttir og Stefnir Ægir Stefánsson. Fjölmargir nemendur menntaskólans taka þátt í sýningunni auk þriggja nemenda úr tíunda bekk grunnskólans í Borgarnesi. Leikstjóri er Bjarni Snæbjörnsson. Bjarni er nemendum að …

Nemendur í íþróttafræði hjálpa til í íþróttaskólanum

RitstjórnFréttir

Nemendur í íþróttafræði 1A06 við MB sáu um íþróttaskóla fyrir 2-6 ára börn í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Umsjón með tíma í íþróttaskólanum er hluti af verkefnavinnu nemenda í áfanganum. Tíminn tókst sérstaklega vel og og að sögn Sigurðar Arnar Sigurðssonar kennara fóru allir glaðir og ánægðir heim jafnt menntaskólanemar sem börnin. Tímar í íþróttaskólanum eru einu sinni í …

Vel heppnað West-Side

RitstjórnFréttir

Árlega hittast nemendur framhaldsskólanna í Borgarnesi (MB), á Akranesi (FVA) og í Grundarfirði (FSN) á skemmtun sem nefnist West-Side. Í ár var Menntaskóli Borgarfjarðar gestgjafinn. Byrjað er á íþróttamóti, síðan er spurningakeppni í anda Gettu betur og endað á balli um kvöldið. Það er samdóma álit að West-Side í ár hafi heppnast vel í alla staði. Sigurvegari í West-Side 2013 …

Ungur rithöfundur spjallar við nemendur

RitstjórnFréttir

Halldór Armand Ásgeirsson er ungur rithöfundur sem nýlega sendi frá sér sína fyrstu bók, Vince Vaughn í skýjunum. Halldór leit við í Menntaskóla Borgarfjarðar fyrir skömmu, spjallaði við nemendur og las úr bókinni. Vince Vaughn í skýjunum inniheldur tvær nóvellur. Í þeim er meðal annars fjallað um internetið þar sem allir geta orðið stjörnur. Aðalpersónur sagnanna eru Sara og Þórir, …

Grunnnám björgunarsveita kennt í MB

RitstjórnFréttir

Nýlega var skrifað undir samning þess efnis að Menntaskóli Borgarfjarðar mun á næstu tveimur árum bjóða upp á kennslu í Björgunarmanni 1 sem er grunnnám fyrir björgunarsveitafólk. Fjórar björgunarsveitir af svæðinu, Brák, Heiðar, Ok og Elliði auk Björgunarskóla Landsbjargar eru aðilar að samningnum. Markmið samningsins er að auka nýliðun í björgunarsveitunum og styðja ungt fólk til að afla sér þekkingar …

Góður árangur Þorkels Más

RitstjórnFréttir

Þorkell Már Einarsson nemandi á náttúrufræðibraut fékk afhenta viðurkenningu fyrir góða frammistöðu í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna 8. október sl. Hann varð í 20-24. sæti af 136 keppendum á efra stigi í forkeppninni og öðlaðist þar með rétt til þátttöku í lokakeppninni sem haldin verður í mars 2014. Afhendingin fór fram í Háskólanum í Reykjavík og það eru félag raungreinakennara í framhaldsskólum …

Heimsókn í leikskóla

RitstjórnFréttir

buy persuasive essay Nemendur í íþróttafræði 1A06 fóru nýverið í heimsókn í leikskólana Ugluklett og Klettaborg og sáu um þar 60 mínútna hreyfistundir. 13 nemendur fóru á hvorn leikskóla. Leikskólabörnunum var skipt í hópa, farið var í leiki bæði úti og í sal og einnig  í danstíma. Heimsókn í leikskóla er hluti af áfanga sem snýst að mestu um þjálfun …

Nýr áfangi í boði – Björgunarmaður 1

RitstjórnFréttir

Kynningarfundur vegna nýs valáfanga, sem nefnist Björgunarmaður 1, verður haldin í stofu 100 (bókasafni) föstudaginn 11. október næstkomandi og hefst kl. 9:50. Skráningu í áfangann lýkur þriðjudaginn 15. október kl. 16:00 og áformað er að kennsla hefjist föstudaginn 18. október. Áfanginn er kenndur í samstarfi við björgunarsveitirnar Brák, Elliða, Heiðar og Ok sem og Björgunarskóla Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Björgunarskóli Slysavarnarfélagsins Landsbjargar …

Nóg að gerast í stjórnmálafræði

RitstjórnFréttir

Um þessar mundir standa svokallaðar lýðræðisvikur yfir í félagsfræði 3A06. Í nýrri aðalnámskrá er mikil áhersla lögð á lýðræði og eru þessar vikur liður í því að uppfylla þær áherslur. Alls eru 6 vikur af önninni notaðar í þennan hluta og felst hann fyrst og fremst í því að nemendahópurinn hefur komist að samkomulagi um hvað hann vill læra í …

Fyrirlestur um jákvæð samskipti

RitstjórnFréttir

buy glasses online cheap Fimmtudaginn 10. október næstkomandi flytur Ásþór Ragnarsson sálfræðingur fyrirlestur um jákvæð samskipti í sal Menntaskóla Borgarfjarðar. MB  tekur þátt í verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli sem hefur það meðal annars að markmiði að stuðla að vellíðan og auknum árangri allra í skólasamfélaginu. Höfuðáhersla verkefnisins er á fjögur viðfangsefni, þ.e. næringu, hreyfingu, geðrækt og lífsstíl og er eitt viðfangsefni …