Nám og gæði kennslu
- Framtíðarsýn Menntaskóla Borgarfjarðar er að vera leiðandi skóli í þróunarstarfi sem leggur áherslu á framsækni og fjölbreytni í kennsluháttum og námsmati.
- Skólinn vill búa nemendum fjölbreytt námsumhverfi með áherslu á verkefnamiðað nám.
- Þá er það stefna skólans að styrkja enn frekar góð tengsl við nærsamfélagið og auka tækifæri nemenda í gegnum alþjóðlegt samstarf.
- MB leggur áherslu á að styrkja og efla námsframboð til að koma til móts við þarfir og áhuga nemenda á upptökusvæði skólans.
Nemendur
- Skólinn vill stuðla að ábyrgð nemenda á eigin námi og að fyrirkomulag náms stuðli að góðri ástundun.
- Áhersla er á að skólabragur sé jákvæður og lýðræðislegur. Að samvinna einkenni lausn viðfangsefna. Að persónuleg samskipti, skapandi hugsun, jafnrétti, góð líðan og virðing fyrir einstaklingnum einkenni skólabraginn.
- Áhersla er lögð á heilsusamlega umgjörð um skólastarfið og að andleg, líkamleg og félagsleg velferð nemenda sé höfð að leiðarljósi.
- Stjórnendur vilja leggja áherslu á að fjölga nemendum með sem fjölbreyttustu námsframboði og gæðum í kennslu.
Stjórnun
- Allur rekstur skólans, aðbúnaður, þjónusta og velferð nemenda og starfsmanna sé til fyrirmyndar.
- Stjórnendur skólans vilja nýta sér þá samfélagsmiðla sem í boði eru við markaðssetningu skólans.