5. 4. 1 Mat á námi úr öðrum framhaldsskólum

Nemandi sem stundað hefur nám við annan framhaldsskóla sem starfar samkvæmt aðalnámskrá menntamálaráðuneytisins fær nám sem hann hefur lokið metið til eininga í Menntaskóla Borgarfjarðar samkvæmt eftirfarandi verklagsreglum: 

  1. Áfangar sem eru metnir frá öðrum skóla þurfa að vera skilgreindur hluti af þeirri námsbraut sem nemandi er skráður á með þeirri undantekningu sem kveðið er á um í lið b. 
  2. Áfangar sem falla utan námsbrautar sem nemandi er skráður á má meta sem valgreinar að því marki sem nemur fjölda eininga í valgreinum viðkomandi brautar. 
  3. Áfangar eru metnir á sama hæfniþrepi og þeir eru skilgreindir í fyrri skóla nemanda, óháð kennslufyrirkomulagi. 
  4. Nám metið úr öðrum skóla kemur fram á prófskírteini.