Menntaskóli Borgarfjarðar hefur leitast við að marka sér sérstöðu með eftirfarandi hætti:
- að leggja áherslu á jákvæðan lífsstíl og andlegt heilbrigði með persónulegri þjónustu við nemendur
- að skipulag náms sé fjölbreytt, einstaklingsbundið og sveigjanlegt
- að áfangakeðjan STÍM sé hluti af öllum stúdentsbrautum
- að stafræn hönnun og miðlun sé áhersluþáttur í flestum áföngum skólans
- að bjóða uppá námsbrautina Náttúrufræðibraut – búfræðisvið í samstarfi við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri
- að vera í nánu samstarfi við fyrirtæki og stofnanir í nærumhverfi sínu
- að vera í fararbroddi hvað varðar námsmat og endurgjöf til nemenda
- að nemendur vinni lokaverkefni út frá áhugasviði og geti skilað vinnu sinni með fjölbreyttum hætti