- Ávallt skulu starfsmenn og nemendur sýna hver öðrum kurteisi og tillitssemi.
 - Nemendur, kennarar og aðrir starfsmenn eiga að mæta stundvíslega til starfa.
 - Nemendum og starfsmönnum ber að ganga snyrtilega um húsnæði og lóð skólans og fara vel með húsmuni og tækjabúnað.
 - Öll meðferð og neysla áfengis og annarra vímuvaldandi efna t.d. tóbaks er bönnuð í húsnæði og á lóð skólans. Einnig á öllum skemmtunum og samkomum á vegum skólans. Þetta á jafnt við um rafrettur, munn- og neftóbak.
 - Skólayfirvöldum, í samráði við stjórn NMB, er heimilt að leita að áfengi og vímuvaldandi efnum í skólanum, á lóð skólans og í tengslum við skólaviðburði.
 - Nemendum og kennurum ber að skila kennslustofum snyrtilegum í lok kennslustundar.
 - Ekki skal trufla vinnu annarra í skólanum.
 - Ábyrgð á námsvali er fyrst og fremst í höndum hvers nemanda.
 - Kennari er verkstjóri í kennslustund en í því felst að fyrirmælum hans ber að hlýða.
 - Nemendur bera sjálfir ábyrgð á að kynna sér reglur og starfsáætlanir skólans og þar með einnig að kynna sér þær leiðir og möguleika sem þeir hafa til að koma málum sínum á framfæri.
 - Starfsfólk og nemendur ganga ekki um á útiskóm innandyra.
 - Nemendur skulu fylgjast reglulega með tilkynningum t.d. í tölvupósti eða á Moodle.
 - Brot á reglum skólans getur valdið brottvísun.