Nemendur og starfsfólk skulu ætíð sýna virðingu og nærgætni í samskiptum innan skólans og gera ekkert sem talist getur særandi eða meiðandi fyrir aðra. Nemendur og starfsfólk skulu fara úr útiskóm við inngang skólans og virða almennar umgengnisreglur.