Vinna innra mat skólans eru notaðir gæðagreinar (e. How good is our school?). Gæðagreinar eru hjálpartæki skóla til að svara spurningunum:
- Hvernig stöndum við okkur?
- Hvernig vitum við það?
- Hvað gerum við næst?
Gæðagreinar eru ennfremur notaðir sem hjálpartæki við að:
- finna sterkar hliðar
- finna þætti, þar sem leggja þarf áherslu á að viðhalda gæðum eða auka þau
- gera þróunaráætlanir í framhaldi af því
- gefa til kynna gæði skólans
Gæðagreinalíkanið byggir á því að skólastarfinu sé skipt upp í níu lykilþætti, sem flestir eru síðan greindir í tvo eða fleiri undirþætti. Markmiðið er að setja upp gæðaramma þar sem fram koma þeir þættir skólastarfsins sem skoðaðir eru hverju sinni. Skipta má gæðarammanum í þrjá meginhluta sem síðan skiptast í undirþætti. Meginhlutarnir eru: Velgengni og árangur skólans – Lífið og starfið í skólanum – Sýn skólans og forysta.
Matsþáttunum eru gefnar einkunnir á bilinu 1 – 6, við matið er notaður eftirfarandi einkunnaskali Markmiðið er að ná sem hæstri einkunn í öllum þáttum skólastarfsins.
6 | Framúrskarandi | Framúrskarandi eða leiðandi á sínu sviði |
5 | Mjög gott | Afar sterkur þáttur |
4 | Gott | Mikilvæg atriði yfirleitt sterk en ákveðin atriði gætu orðið betri |
3 | Nægilegt | Sterk atriði rétt ná að vega meira en slök |
2 | Slakt | Mikilvæg atriði slök |
1 | Ófullnægjandi | Afar slakur þáttur |
Auk þeirra þátta sem fram koma í Gæðagreinalíkaninu eru gerðar viðhorfskannanir meðal nemenda, starfsfólks og foreldra, ásamt hefðbundnu kennslumati.
Markmiðin með innra mati Menntaskóla Borgarfjarðar er að bæta og efla skólastarfið, meta hvort markmið skólans hafi náðst, benda á það sem vel er gert og finna leiðir til þess að bæta það sem betur má fara.